Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bílar og akstur

Sæluhelgi framundan á Súganda

Það hefur ekki farið framhjá Súgfirðingum að Sæluhelgin er að renna í hlað. Hér á Suðureyri keppastH17 menn við garðslátt og kantskurð á meðan aðrir eru að mála og dytta að húsum sínum. Arnar Guðmunds og Bjarni Jóhanns eru á fullu að snyrta lóðina í kringum Þurrkver og Ingimarshjallinn. Þar er búið að slétta lóðirnar og líklega verður sett gras þar ofaná. Einnig hafa þeir útbúið gangstíg meðfram grjóthleðslunni fyrir neðan Þurrkver.

Samkvæmt mínum heimildum er búist við miklum fjölda gesta vestur á Sæluhelgina enda troðfull dagskrá í þrjá heila daga, frá föstudegi og fram á sunnudagskvöld. Hægt er að sjá dagskrána á www.sudureyri.is

Kveðja

Róbert Schmidt
S: 8404022 

Sjö lúður á land

Alls hafa veiðst sjö lúður hjá Hvíldarklettsbátunum frá Suðureyri og Flateyri það sem af er sumars. Af1180 kg 182 sm luda 3Luda5Ulli 300 þessum sjö eru 4 stórlúður en frá Suðureyri hafa veiðst 57 kg og 80 kg lúður en frá Flateyri 108 kg og 110 kg flykki. Síðan hafa veiðst þrjár smálúður á bilinu 3-6 kg. Er þetta mun betri lúðuveiði en t.d. á síðasta ári en þá vó stærsta lúðan 77 kg.

Stórþorskar veiðast vel á sjóstönginni og algengt er að sjá þorska á bilinu 20-26 kg að þyngd eða um 145 sm að lengd þeir stærstu. 16 kg skötuselur veiddist nýverið á stöng frá Suðureyri en fjörðurinn er víst fullur af skötusel.

Sjóstangavertíðin hefur gengið mjög vel og mikið að gera. Öll hús og bátar hafa verið fullbókuð frá því eftir miðjan maímánuð. Síðustu hóparnir fara af landi brott um miðjan september nk.

Texti og myndir:
Róbert Schmidt

Fyrstu sjóstangakallarnir mættir

Fyrstu viðskiptavinir Hvíldarkletts í sjóstangaveiði mættu vestur í dag en þeir komu akandi með rútuBobby 12 vegna frestunnar á innanlandsflugi. Tveir hópar komu frá þýskalandi í dag til Flateyrar og von er á tveimur hópum frá Hollandi á miðvikudaginn og síðan kemur einn hópur keyrandi vestur nk laugardag. Búið er að sjósetja 10 báta á Flateyri og verða fleiri sjósettir næstu daga og eins og flestir vita, þá verða 11 bátar staðsettir á hvorum stað fyrir sig, þ.e. Suðureyri og Flateyri. Búist er við fyrstu sjóstangaköllunum til Suðureyrar 11. maí nk en bókanir fyrir sumarvertíðina í ár eru góðar.

Texti og myndir:
Róbert Schmidt 

Skólagata 6 fær andlitslyftingu

Skólagata 6 á Suðureyri er reisulegt og fallegt gamalt timburhús sem Ísfirðingurinn Gísli Úlfarsson2 og Inga kona hans keyptu sem sumarhús á síðasta ári af fasteignarfélaginu Hlöðku sem er í eigu Elíasar Guðmundssonar. Fjölskyldan unir sér ákaflega vel í húsinu sem er tveggja hæða timburhús á miðri eyrinni. Skólagata 6 fær nú kærkomna andlitslyftingu en búið er að rífa gamla bárujárnið af öllum útveggjum hússins og byrjað að slá upp fyrir einangrun og nýju bárujárni. Flokkur vaskra smiða frá Bolungarvík sér um verkið.

Nýtt þakjárn er á húsinu sem og nýir gluggar. Eftir andlitslyftinguna fær Skólagata 6 á sig nýja og glæsilega mynd enda fallegt hús á góðum stað. Að endingu ætla Gísli og Inga að girða lóðina af í sumar. Það má því segja að endurbætur á gömlum húsum á Suðureyri byrja af krafti1 í ár og mun fyrr en venjulega. Síðasta ár var eitt það besta í langan tíma í endurbótum húsa á Suðureyri en þá þögnuðu hamrarnir ekki allt sumarið. Ásýnd sjávarþorpsins Suðureyri er til fyrirmyndar, þökk sé framtaksömum húseigendum og fyrirtækjum á staðnum.

Meðfylgjandi myndir voru teknar í dag þegar Gísli og bolvísku smiðirnir voru að verki við Skólagötu 6.

Texti og myndir:

Róbert Schmidt 

Vel heppnað blakmót

Blakáhugafólk skemmti sér vel í íþróttahúsinu á Suðureyri laugardaginn 3. apríl en þá var haldiðP12 skemmti-páska-blakmót þar sem ungir og aldnir spiluðu blak frá 11 að morgni til kl 15:00. Mótið var að þessu sinni einstaklingskeppni og sigurvegari mótsins var Björn Guðbjörnsson. Snorri Sturluson var elsti keppandinn og allir keppendur fengu verðlaun að lokum sem Anna Bjarnadóttir afhenti en hún safnaði öllum vinningunum saman og á þakkir skildar fyrir vel unnið verk. Á milli 25-30 keppendur skráðu sig til leiks. Þetta er annað blakmótið sem haldið er um páska á Suðureyri og vonandi verða fleiri haldin næstu árin.

Texti og myndir
Róbert SchmidtP6

Fullt hús á sögustund á Talisman

Veitingastaðurinn Talisman stóð fyrir sögustund á Skírdagskvöld þar sem Guðni Einarsson, Snorri1 Sturluson, Þóra Þórðardóttir og James hinn írski sögðu gestum sögur úr ýmsum áttum. Húsfylli var á Talisman og greinilegt að heimamenn kunna að meta slíkar þjóðlegar uppákomur.

Guðni Einarsson sagði frá eftirminnilegri ferð sinni til Nigeríu og sjóferðum á Sigurvon ÍS frá Suðureyri. Einnig sagði Guðni frá þeirri sérkennilegri iðju sem krakki að hlaupa í gegnum húsið hennar Betu gömlu til að stytta sér leið niður í þorpið. Var mikið hlegið af þeirri frásögn. Snorri Sturluson sagði frá Grænlandsferð sem taflfélagið Hrókurinn fór í og flutti margar vísur og limrur. Einnig sagði Snorri frá strandi breska togarans Talisman við Keravíkina í Súgandafirði sem var átakaleg11 frásögn og eftirminnileg. Þóra Þórðar sagði m.a. frá mannlífi við Þverá í Staðardal sem var lítið kot úr Bæjarlandi undir hjöllunum þar sem Sunddalsá rennur. James hinn írski, eins og hann er kallaður á Suðureyr,i sagði þjóðsögu frá írsku smáfólki eða álfum en þess má geta að James er mannfræðinemi og dvelur hann á Suðureyri í 6 mánuði til að kynnast heimamönnum, atvinnulífi, menningu og sögu staðarins.

Góður rómur var gerður að sögunum og gestir hlustuðu af áhuga og þökkuðu fyrir sig með lófaklappi. Þarna skapaðist góð stemning utan um sagnarlistina sem hefur fylgt Íslendingum í hundruð ára. Jón Arnar Gestsson, vert á Talisman, þakkaði í lokin sögufólki og gestum fyrir komuna og sleit formlega fyrsta sögukvöldi á Talisman sem verður vonandi endurtekið.

Fleiri ljósmyndir frá sögukvöldinu er að finna á eftirfarandi tengli á myndaalbúmið á forsíðunni:

http://sudureyri.blog.is/album/sogustund_a_talisman_2010/

Texti og myndir: Róbert Schmidt


Sögukvöld, páskeggjaleit og lifandi tónlist á Suðureyri um páskana

Það verður nóg um að vera á Talisman og FSÚ-barnum um páskana að sögn Jóns ArnarsStadardalur 1 Gestssonar rekstraraðila. "Hér verður opið frá kl 08 að morgni alla daga til miðnættis. Við verðum með hlaðborð í hádeginu og á kvöldin alla páskana hér á Talisman og ýmsar uppákomur bæði fyrir fullorðna og börn," segir Jón. 

Á Skírdagskvöldið verður Sögustund á Talisman þar sem sagnamenn og konur mæta og segja sögur úr ýmsum áttum. Allir sem luma á góðum sögum eru hvattir til að mæta á staðinn og vera með. 

Eftir miðnætti á Föstudaginn langa verður boðið uppá lifandi tónlist og trúbadorsstemningu á FSÚ-barnum. Tilvalið fyrir heimamenn og gesti að safnast þar saman og gleðjast í góðra vina hópi.

Á Páskadag verður Páskaeggjaleit á Suðureyri sem er verið að útfæra. Nánar um það síðar. Eftir miðnætti á Páskadag verður karaoikí-kvöld á FSÚ-barnum þar sem hver og einn verður söngstjarna kvöldsins með sínu sniði.

Eins og sjá má hér að ofan, verður nóg fyrir stafni á Suðureyri yfir Páskahelgina. Minni líka á handverkshúsið Á milli fjalla þar sem hægt er að gera góð kaup á alls kyns handgerðum varningi úr heimabyggð. Handverkshúsið er staðsett í gamla Kaupfélaginu á móti Talisman.

Einnig má geta þess að tökur á kvikmyndinni Vaxandi tungl mun standa yfir á Suðureyri um og eftir páskana. Þá má líklega sjá bregða fyrir þekktum andlitum á eyrinni, eins og t.d. Pálma Gests, Elvu Ósk og Elfari Loga.

Páskamót í blaki verður í íþróttahúsinu Föstudaginn langa. Sjá nánar í frétt hér fyrir neðan.

Kveðja

Róbert Schmidt


Páskamót í blaki á Suðureyri

Haldið verður í annað sinn Páskamót í blaki í íþróttahúsinu á Suðureyri laugardaginn 3. apríl.Sugandafjordur I 500 Blakmótið verður eins konar skemmtiblak þar sem ungir og aldnir leiða saman hesta sína til að hafa gaman af. Mótið hefst kl 11:00 um morguninn og er þátttökugjald kr 300 á einstakling. Mótið er fyrir 14 ára og eldri. Skráning þarf að klárast kl. 15:00 á Föstudaginn langaSkírdag til Önnu Bjarna í síma: 897-5153.

Þátttakan sker úr um hvort mótið verður liðakeppni eða einstaklingskeppni. Páskablakið er tilvalin skemmtun fyrir þá sem vilja sprikkla aðeins og eiga góðan dag með skemmtilegu fólki, komast í sund á eftir og slaka á í heitu pottunum og spjalla saman. Vegleg verðlaun verða í boði eins og síðast. Hvetjum alla áhugasama 14 ára og eldri að skrá sig til leiks sem fyrst.

Munið skráningasímann: 897-5153

Kveðja

Róbert Schmidt
S: 8404022 

 

 


Næsta síða »

Höfundur

Róbert Schmidt
Róbert Schmidt

Fæddur Súgfirðingur og þykir vænt um fjörðinn og fólkið heima. Netfangið mitt er: robert@skopmyndir.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband