Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Frá árshátíð Fiskiðjunnar Freyju

Hér er ein eftirminnileg mynd frá árshátíð Fiskiðjunnar Freyju sem haldin var fyrir margtSteini löngu í Félagsheimili Súgfirðinga. Steingrímur Guðmundsson vippaði sér uppá borð keðjuklæddur í leðri og söng eins og honum væri borgað fyrir það, eldsprækur að vanda. Gat ekki stillt mig um að setja þessa mynd af Steina hér inn en hún er úr safni Bjarna Baldurs. Fyrirgefðu mér Steini minn, ég bara varð LoL

Kveðja

Róbert

Þegar strákarnir voru allir með yfirvaraskegg

Ég rakst á mjög skemmtilegar myndir á Facebook síðunni hans Bjarna Baldurs en fyrir þá sem ekki 21muna eftir Bjarna, þá var hann lengi til sjós á Suðureyri en býr í Noregi í dag. Bjarni er nú að taka til í myndasafninu sínu og hann gaf mér góðfúslegt leyfi til að birta í sérstöku albúmi hér á síðunni nokkra gullmola frá þeim tímum þegar allir strákarnir voru með yfirvaraskegg. Það muna eflaust margir eftir þeim tíma. Í myndasafninu hans Bjarna má líka finna óborganlegar myndir frá árshátíð fiskiðjunnar Freyju þar sem Steini Binnu fór á kostum. En nóg um það, kíkið á myndaalbúmið við tækifæri og skrifið comment undir þessa frétt.

Á meðfylgjandi mynd eru þeir Diddi Viddi og Brynjar Diego. Flott bindi hjá strákunum og hvítir sokkar. Munið eftir bekknum sem þeir sitja á? Hann var lengi í FSÚ

http://sudureyri.blog.is/album/myndir_fra_bjarna_baldurs/

Ps. Takk fyrir lánið á myndunum Bjarni.

Kveðja

Róbert


145 manns bókaðir á Súgfirðingablót í Kópavogi

Samkvæmt síðustu tölum frá formanni Súgfirðingafélagsins í Reykjavík, Sigurþóri Ómarssyni, hafa 128145 manns bókað sig á þorrablót félagsins sem verður haldið í Lionssalnum Lundi Auðbrekku 25-27 í Kópavogi föstudagskvöldið 30. janúar og opnar húsið kl 19:30 og borðhald hefst kl 20:30. Miðaverð er kr 4.900. Þetta er mjög góð mæting í því kreppuástandi sem ríkir á landinu. Einnig má búast við einhverjum tugi manns á ballið en Diddi Abbi & hljómsveit sér um fjörið fram á nótt og lofað er miklu stuði. Magnús Guðfinnsson flytur bæði mynni karla og kvenna og veislustjóri kvöldsins er engin annar en hagyrðingurinn og kennarinn Snorri Sturluson. Einnig verður glæsilegt happadrætti til styrktar félaginu okkar.

Enn eru lausir miðar eftir því húsið tekur 180 manns í sæti. Áhugasamir hafið samband við Sigurþór í síma: 863-5301.

Sjáumst eldhress á þorrablóti Súgfirðingafélagsins í Reykjavík.

Kveðja

Róbert

Endurbætur á FSÚ í fullum gangi

Um síðast liðna helgi voru 15 manns að mála og endurbæta innandyra í Félagsheimili Súgfirðinga og FSU 13miðar verkinu vel að sögn Sturla Páls Sturlusonar sem er einn af mörgum sem hafa lagt hönd á verkið. Eins og sjá má á myndunum eru bæði konur og karlar sem vinna verkin. Bjössi Kristmanns lét sig ekki vanta með málningarrúlluna enda þrælvanur að taka til hendinni hverju sem þar nefnist.

Unnið verður hörðum höndum við endurbætur fram að Góublóti Súgfirðinga og eflaust hlakkar mörgum til að ganga með trogið sitt inní gamla góða félagsheimilið, nýmálað og flott. Frábært framtak hjá Hollvinum FSÚ. Við segjum meira frá hvernig verkinu miðar á næstu vikum. Myndirnar í myndasafninu á forsíðunni tóku þau Þorgerður Karlsdóttir og Sturla Páll Sturluson.

http://sudureyri.blog.is/album/endurbatur_a_fs_09/

FSU 15
Kveðja

Róbert


Þorrablót foreldrafélags Grunnskólans á Suðureyri

Foreldrafélag Grunnskólans á Suðureyri stóð fyrir sínu árlega þorrablóti í nýja íþróttahúsinu 1föstudaginn 23. Janúar. Góð þátttaka var að blótinu, sem sótt var af  skólabörnum og foreldrum þeirra, ásamt systkinum, öfum og ömmum.  Borðhald var með hefðbundnum hætti og mátti sjá ýmsa þjóðlega rétti renna ljúft í gesta maga. Undir borðum tróð Þóra Þórðardóttir, kennari m.a. upp með skemmtidagskrá þar sem yngstu börnin fengu að spreyta sig. Auk þess stigu nokkrar mæður á svið og fluttu leikþátt við góðar undirtektir blótsgesta.

Snorri Sturluson, kennari var með spennandi spurningakeppni og unglingahljómsveitin BROT flutti blótsgestum nokkur rokkuð lög, en hljómsveitin er eingöngu skipuð nemendum úr Grunnskólanum á Suðureyri. Bandið er með aðstöðu í Bryggjukoti, en svo nefnist áhaldaskemman hans Valgeirs 2Hallbjörnssonar á Suðureyri.  Að lokum var dans stiginn  fram eftir kveldi undir ljúfri diskó-tónlist 9. og 10. bekkjar.

Myndir frá þorrablótinu er að finna hér:

http://sudureyri.blog.is/album/orrablot_grunnskolans_2009/

Kveðja

Texti og myndir: Sturla Páll Sturluson 
Ljósmyndir: Halldóra Hannesdóttir (að hluta í albúmi)




3

Afsláttur 66°N fer eftir frostinu á Suðureyri

Á vefsíðu 66°Norður kemur fram sú skemmtilega staðreynd að 66°Norður hafi verið stofnað á 66 nordurSuðureyri við Súgandafjörð árið 1926. Stofnandi fyrirtækisins var Hans Kristjánsson ásamt nokkrum öðrum aðilum. Hans hafði kynnt sér sérstaklega framleiðslu sjófatnaðar í Noregi nokkrum árum áður.
Verð á fatnaði 66°N fer núna eftir frostinu á Suðureyri.

Í hver skipti sem hitinn þar fer niður fyrir frostmark verður afslátturinn í verslunum 66°N á meðan kuldakastið varir. Ef mælirinn sýnir -1°C til -5°C er afslátturinn 5% og svo koll af kolli. Sem sagt, eftir því sem frostið eykst á Suðureyri hækkar afslátturinn hjá 66°Norður. Svo einfalt er nú það. En ath að afslátturinn gildir ekki ofaná auglýst tilboð í verslunum 66°Norður.

Fisherman á Suðureyri er endursöluaðili 66°Norður á Suðureyri.

Kveðja

Róbert


120 miðar seldir á þorrablót Súgfirðingafélagsins

Í samtali við formann Súgfirðingafélagsins í Reykjavík í dag (þriðjudag), Sigurþór Ómarsson, kemur fram að alls hafa 120 manns111 skráð sig á þorrablót félagsins sem verður haldið í Lionssalnum Lundi Auðbrekku 25-27 í Kópavogi föstudaginn 30. janúar. "Þetta er allt í áttina. Við þurftum 120 manns til að þetta standi undir sér og það er komið. Allt umfram þessa tölu er bónus fyrir félagið," segir Sigurþór og er bjartsýnn á enn betri þátttöku á blótið en salurinn tekur 180 manns í sæti.

Á síðasta ári mættu tæplega 170 manns á þorrablót félagsins sem haldið var í Kópavogi og þótti heppnast vel. Mikið af ungu fólki mætti þá á þorrablót í fyrsta sinn og félagsmenn glöddust vel yfir þeirri mætingu en þess má geta að þá söfnuðust um 35 nýjar umsóknir í Súgfirðingafélagið í Reykjavík.

Það verður án efa mikið súgfirskt fjör á blótinu næstu helgi en hljómsveitina skipa að stórum hluta Súgfirðingar eins og Diddi Abbi, Kiddi á Stekkjarnesinu og Helgi Ibsen. Þeir sem vilja panta miða á matinn geta haft samband við Sigurþór í síma:  863-5301.

Kveðja

Róbert

Endurbætur á Félagsheimili Súgfirðinga

Fréttir herma að hollvinir FSÚ á Suðureyri séu að undirbúa talsverðar endurbætur á Félagsheimili FsuSúgfirðinga en í samtali við Sturla Pál Sturluson kom fram að þessi hugmynd hafi verið sett af stað eftir áramótadansleikinn á Suðureyri. Hollvinir FSÚ er óformlegur félagsskapur að stórum hluta skipaður Sæluhelgargenginu. Sturla bar fram tillögu á Góukarlafundi nýverið að halda Góublótið í FSÚ og kom fram mikill stuðningur við tillöguna og nú hefur verið gerð úttekt á því sem þarf að lagfæra til að hægt sé að halda blótið með góðu móti.

Niðurstaðan varð sú  að mála allt innandyra, auka smáviðgerðir á hurðum, gluggum og endurnýjun ljósa. Bærinn hefur tekið jákvætt í þetta verkefni og líklegt er að hann leggi til fjármagn í nýjar gardínur og málningu. Fyrirtækin Íslandssaga og Klofningur leggja sitt af mörkum en meiningin er að fá sem flesta íbúa til að vinna verkið í sjálfboðavinnu. Í framhaldinu er fyrirhugað að stofna formlega Hollvinafélag FSÚ en fjölmargir einstaklingar og fyrirtæki hafa lýst áhuga sínum að koma að verkinu með einum eða öðrum hætti.

Hollvinir FSÚ eru um þessar mundir að dreifa kynningarbréfi um verkefnið í hús á Suðureyri og víðar á Netinu í þeirri von að góð og öflug samstaða náist um framtíð Félagsheimili Súgfirðinga.

Kveðja

Róbert


Önnur lota í Súgfirðingaskálinni

Önnur lota í Súgfirðingaskálinni. tvímenningsmóti Súgfirðingafélagsins var spiluð á mánudaginn. Alls mættu 10 pör til leiks. Gróa Guðnadóttir og Guðrún K. Jóhannesdóttir hófu árið eins og þær enduðu það síðasta. Þær tóku gott skor og leiða keppnina með nokkrum yfirburðum. Þrjár lotur eru eftir í keppninni og gilda fjögur bestu til verðlauna.

Meðalskor eftir tvær lotur er 216 stig.

Gróa Guðnadóttir - Guðrún K. Jóhannesdóttir = 262
Einar Ólafsson - Þorsteinn Þorsteinsson = 238
Jón Óskar Karlsson - Karl Ómar Jónsson = 234
Valdimar Ólafsson - Karl Bjarnason = 227
Sigurpáll Ingibergsson - Arngrímur Þorgrímsson = 222
Björn Guðbjörnsson - Gunnar Ármannsson = 219
Finnbogi Finnbogason - Pétur Carlsson = 215

Úrslit í 2 lotu urðu þessi:

Gróa Guðnadóttir - Guðrún K. Jóhannesdóttir = 129
Einar Ólafsson - Þorsteinn Þorsteinsson = 121
Björn Guðbjörnsson - Gunnar Ármannsson = 121
Jón Óskar Karlsson - Karl Ómar Jónsson = 117
Finnbogi Finnbogason - Pétur Carlsson = 113
Valdimar Ólafsson - Karl Bjarnason = 105
Sigurpáll Ingibergsson - Arngrímur Þorgrímsson = 102
Ásgeir Sölvason - Sölvi Ásgeirsson = 97
Sigurður Kristjánsson - Karl Sigurðsson = 88
Guðbjörn Björnsson - Steinþór Benediktsson = 87

Næsta lota verður spiluð mánudaginn 23. febrúar nk.

Með kveðju

Briddsáhugamenn

Góublótið í Félagsheimili Súgfirðinga á ný

Fréttir herma að Góublótsnefndin (karlarnir) á Suðureyri hafi ákveðið nær einróma að færa Góublótiðblot aftur í gamla félagsheimilið (FSÚ) til að ná réttri stemningu þrátt fyrir að þröngt verði þar á þingi. Síðast liðin ár hafa þorrablótin á Suðureyri verið haldin í íþróttahúsinu en sumir segja að hljómurinn þar sé ekkert í líkingu við gamla góða félagsheimilið. Þetta eru tíðindi fyrir Súgfirðinga og án efa mikil gleðitíðindi. Hús- og skemmtinefndir eru í óða önn að skipuleggja, skrá og æfa þessa daganna og menn mega búast við léttum og föstum skotum í gamansömum tón þegar stóra stundin rennur upp.

Þegar síðast fréttist var búið að skrá 160 manns á Góublótið á Suðureyri og víst er að þröngt mega sáttir sitja. Það verður spennandi að fylgjast með því hvernig þetta fer fram og hvernig það verður að koma aftur á blót í félagsheimilinu. Meira um það síðar.

Róbert 

Næsta síða »

Höfundur

Róbert Schmidt
Róbert Schmidt

Fæddur Súgfirðingur og þykir vænt um fjörðinn og fólkið heima. Netfangið mitt er: robert@skopmyndir.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband