Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Stefnismenn rifja upp 26 ára gamlan leik

Nokkrir hressir Stefnismenn hittust í kvöld (26. mars) til að rifja upp 26 ára gamlan knattspyrnuleik semS 1 háður var á Ljónsvellinum (Skeiðinu)  á Ísafirði 18. júní 1983 en þá léku Stefnir frá Suðureyri við Aftureldingu frá Mosfellsbæ í 4 deildinni. Þjálfari Stefnis var þá Magnús Erlingsson sem lék jafnframt með liðinu. Það var Björn Guðbjörns sem hóaði okkur strákunum saman á heimilið sitt í Fellsmúlanum enda hafði Björn komist yfir myndband af öllum leiknum og fært yfir á DVD. Tilhlökkunin var mikil að horfa á þennan leik sem er mikil heimild og líklegasti sá eini sem til er af Stefnisliði fyrr og síðar.

Þeir sem mættu í Fellsmúlann ásamt gestgjafanum voru þeir Magnús Guðfinnsson, Magnús Erlingsson, S 6Magnús Friðjónsson, Örn Sævar Holm og Róbert Schmidt. Nokkuð var um forföll en það gerðist líka oft í leikjunum hér um árið þegar menn höfðu vöxtinn og hárið. Boðið var uppá pizzur og gos ásamt hlaðborði af snakki og sælgæti að hætti Björns sem hafði að auki prentað út 10 leikskýrslur frá þessu sumri. Á þessum tíma voru þeir Björn og Maggi Erlings 23 ára gamlir, tágrannir og spengilegir. Stefnisliðið í þessum leik skipuðu eftirfarandi knattspyrnumenn samkvæmt leikskýrslu:

Jens Daniel Holm
Örn Sævar Holm
Magnús Erlingsson
Þorsteinn Erlingsson
Björn Guðbjörnsson
Arnar Guðmundsson
Guðmundur Vignir Friðjónsson
Gunnlaugur Guðleifsson
Þorsteinn Guðbjörnsson
Rögnvaldur Guðmundsson (Flateyri)
Halldór Antonsson (Ísafirði)

Varamenn voru þeir Hjálmar Erlingsson og Hlynur Jensson.
Dómari var Garðar Smári Gunnarsson frá Ísafirði.

Leikurinn var hin besta skemmtun að horfa á og margir snilldar taktar voru sýndir á grýttum malarvellinumS 2 þrátt fyrir fáeina drullupolla sem voru hér og þar um völlinn. Öddi skoraði fyrsta markið eftir aðeins 5 mín leik og náði síðan að skora annað mark í fyrri hálfleik en Mosfellingar náðu að setja boltann einu sinni í netið hjá Jenna Holm áður en flautað var til hálfleiks. Seinni hálfleikurinn var reyndar töluvert lengri en hefðbundinn leiktími en líklega hafði dómarinn gleymt sér í öllum látunum og sjaldan séð aðra eins spilamennsku að það varð að minna hann á að leiktíminn var útrunninn. Gummi Vignir skoraði þriðja mark Stefnismanna og eftir það var mikið pressað á Súgfirðingana og varði Jenni Holm hvern boltann af öðrum. Þreytan var farin að segja til sín hjá leikmönnum beggja liða en Afturelding náði með harðfylgi og liðsinni dómara að jafna leikinn fáeinum sekúndum áður en dómarinn flautaði til leiksloka.

Það var mikið hlegið í stofunni hjá Birni þetta kvöld og svo voru mörg atriði úr leiknum sýnd aftur. KomMaggi Erlings til tals að senda KSÍ fáeinar athugasemdir við dómgæsluna í þessum leik en líklega er það aðeins og seint í rassinn gripið 26 árum eftir að leiknum lauk. Örn Holm fékk að líta gula spjaldið sem og Steini Imbu fyrir grófan leik og Þorsteinn Erlings fékk áminningu fyrir minniháttar brot eða “handbolta”.

Að lið frá 450 manna sjávarþorpi vestur á fjörðum skuli hafa náð jafntefli við knattspyrnulið frá 2500 manna bæ að sunnan þótti nú bara andskoti góður árangur en sjálfsögðu áttu Stefnismenn að vinna leikinn. Einhverjir sögðu að Halli Bjössi hafði sett álög á Stefnisliðið fyrir leiktíðina þegar hann komst ekki með á Ísafjörð til að horfa á leik með liðinu og sagði við þá og veifaði fingri til þeirra “Þið vinnið ekki einn einasta leik í sumar” Samkvæmt tölfræði sumarsins var fátt um sigra en ansi mörg jafntefli og voru álögin frá Hallbirni því talin vera helsta ástæða fyrir frekari sigurgöngu Stefnismanna þessa leiktíð.

Eftir áhorf leiksins var klappað fyrir leikmönnum og síðan var kosið um mann leiksins. Þjálfarinn fékk aðBjorn kjósa tvisvar. Úrslit verða gerð kunn síðar til að halda spennunni aðeins áfram. Síðan voru sagðar sögur að vestan fram eftir kvöldi og menn kvöddu hvern annan með tárin í augunum eftir allan hláturinn. Læt fylgja hér fáeinar myndir frá þessu skemmtilega kvöldi. Hópmyndina tók Harpa, dóttir Björns.
Fleiri myndir er að finna í myndaalbúminu á síðunni.

Með Stefniskveðju

Róbert Schmidt




 

Rauðmagavertíðin hafin í Súgandafirði

Vorboðinn ljúfi, rauðmaginn er kominn í Súgandafjörð. Þeir Ævar Einarsson og Valgeir Hallbjörnsson valli_og_aevarfengu sex rauðmaga í netin sín við Stekkjarnesið fyrir fáeinum dögum sem segir að vorið er á næsta leiti þótt páskahretið sé enn eftir og Hvítasunnuhretið líka. Rauðmagaveiðin í Súgandafirði í fyrra var mjög góð en þá veiddust um eða yfir 5000 rauðmagar í net súgfirskra rauðmagaveiðimanna en þeir sem voru öflugastir í fyrra voru þeir Bjössi Kristmanns, Egill Kitt, Valli & co og síðan lagði Ölli fáein net með Steina og Ævar var líka með rauðmaganet í sjó. Meðfylgjandi mynd tók undirritaður af þeim Ævari og Valla í fyrra þegar þeir prófuðu Haukalóð út af Galtarvita.

Kveðja

Róbert

Hollvinasamtök FSÚ stofnuð

Hollvinasamtök Félagsheimili Súgfirðinga / FSÚ, héldu stofnfund á Suðureyri 20. mars sl en samtökin 14rdvlrvilja hlúa að gamla félagsheimilinu og endurbyggja það með aðstoð einstaklinga og fyrirtækja. Stjórn FSÚ var kosin á fundinum en hana skipar eftirfarandi aðilar: Óðinn Gestsson formaður, Erla Eðvarðsdóttir ritari, Vernharð Jósefsson gjaldkeri og meðstjórnendur eru þau Halldóra Hannesdóttir og Leifur Blöndal. Varamenn eru Ævar Einarsson og Valur Valgeirsson. Skoðunarmenn reikninga eru Ágústa Gísladóttir og Sigurður Ólafsson.

Á stofnfundinum færði Guðni Einarsson samtökunum eina milljón króna fyrir hönd stjórnar Klofnings. Þá tilkynnti Óðinn Gestsson um gjöf uppá 1,5 milljónir króna frá Íslandssögu ehf og tengdum fyrirtækjum. Alls hafa 150 manns skráð sig sem stofnfélagar FSÚ á Facebook. Hvíldarklettur ehf hefur boðist til að sjá um lóðafrágang við húsið og Mansavinir færðu samtökunum peningagjöf upp á 250 þúsund krónur auk 40 þús kr framlags frá áramótadalsleik sem áhugamenn héldu.

Á stofnfundinum var einnig ákveðið að ganga til viðræðna við eigendur félagsheimilisins um að þeir velti fyrir sér hver framtíð  hússins geti verið. Samkvæmt uppl samtakana eru eigendur hússins Ísafjarðarbær sem á 55%, Verkalýðsfélag Vestfirðinga 15%, Íþróttafélag Stefnir 15%, Kvenfélagið Ársól 15%. Erindi samtakana var tekið fyrir á fundi bæjarráðs og bæjarstjóra falið að ganga til viðræðna við stjórnina.

Á fundinum var einnig samþykkt að allir geta orðið stofnfélagar sem skrá sig fyrir 17. júní nk á netfangið: fsug@visir.isTaka þarf fram kennitölu og netfang viðkomandi. Félagsgjald í FSÚ er kr. 1000.

Heimildir www.bb.is

 


Hvíldarklettur auglýsir eignir sínar til sölu

„Já, ég get staðfest það en það er ekki búið að klára eitt né neitt,“ segir Elías Guðmundsson, batahofnin_500framkvæmdastjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Hvíldarkletts ehf. á Suðureyri, aðspurður hvort einhverjir aðilar hafi sýnt eignum fyrirtækisins áhuga, en allar eignir Hvíldarkletts voru settar á sölu í síðustu viku. Elías segist ekki sjá fram á annað en starfsemi fyrirtækisins verði áfram í sumar. Hann segir aðilana, sem eru í viðræðum við fyrirtækið um kaup á eignum þess, vera tengda ferðaþjónustubransanum en Elías vildi ekki tjá sig um hvort Hvíldarklettur kæmi til með að sameinast ferðaþjónustufyrirtækinu Sumarbyggð í Súðavík.

Heimildir www.bb.is


Höfundur

Róbert Schmidt
Róbert Schmidt

Fæddur Súgfirðingur og þykir vænt um fjörðinn og fólkið heima. Netfangið mitt er: robert@skopmyndir.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband