Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Fyrsta kindin á Bæ bar fimm lömbum

Samkvæmt heimildum bar fyrsta kindin á Bæ í Súgandafirði í gærdag (miðvikudag) fimm lömbum semkalli verður að teljast ansi mikið ef miðað er við venjulegan sauðburð. Hjónin Ingibjörg og Karl Guðmundsson eru ábúendur á Bæ og er greinilegt að vorið er komið í sveitina hjá þeim hjúum. Frjósemin virðist vera einstaklega mikil hjá þessari kind á Bæ og forvitnilegt verður að fylgjast með hvernig sauðburðurinn þróast þar áfram næstu daga og vikur.
kalli 2
Á myndunum eru Kalli í Bæ að marka lömbin sín og Birta Rós og Matthildur gefa lambi mjólk úr pela.

Myndirnar tók Guðrún Margrét Karlsdóttir

Kveðja

Róbert

 


Valli búinn að landa rúmlega 500 rauðmögum

Valgeir Hallbjörnsson er seigur á rauðmaganum en það sem af er vori er kallinn búinn að draga vel valgeir_hallbjornssoná sjötta hundrað rauðmaga á bátnum sínum Tjaldi. Ævar Einarsson, sem er í fæðingarorlofi, hefur farið með Valla í netin undanfarið og þeir félagar veitt vel. Í síðasta drætti náði Valli 100 rauðmögum í 11 net og sum netin voru bæði fyrir utan og innan skerið við hafnarbakkann. Valli er enn sem komið er eini báturinn í Súgandafirði sem er á rauðmaganetum en í fyrra voru þeir Egill Kitt og Bjössi Kristmans drjúgir og svo lögðu þeir Ölli og Steini nokkur net í fjörðinn.

Kveðja

Róbert

Bobby bátarnir sjósettir á Suðureyri

Starfsmenn Hvíldarkletts ehf sjósettu alls 11 Bobby báta á Suðureyri í dag fyrir komandi 1sjóstangaveiðivertíð sem hefst í maímánuði. Stefnt er að sjósetja hina 11 Bobby bátana sem eru á Flateyri innan skamms. Fyrstu viðskiptavinirnir eru væntanlegir fyrri part maí mánaðar en uppúr miðjum maí fer vertíðin í gang af fullum krafti og er ágætlega bókað í júní, júlí og fram í ágúst en búist er við að síðustu gestirnir fara af landi brott í september. Verið er að undirbúa bátaflotan og gera þá klára fyrir haffærni en talsverð vinna liggur að baki varðandi viðhaldsþáttinn á 22 bátum. Guðmundur Svavarsson stjórnar því verki með þekkingu og reynslu.

Búið er að færa þrjú sumarhús sem staðsett voru í miðju kauptúninu inn að knattspyrnuvellinum við Lónið þar sem þau munu standa um ókomna framtíð. Enn2 er eftir að leggja lagnir og tengja bústaðina á nýju uppfyllingunni sem verður gert um leið og snjórinn er farinn og veður verður skaplegt. Komandi sjóstangaveiðivertíð leggst vel í mannskapinn og verið er að leggja síðustu hönd á skipulagningu og frágang áður en erlendu veiðimennirnir mæta vopnaðir stöngum og skutlum með "stórlúðu" glampann í augunum.

Myndirnar tók undirritaður í dag þegar Bobby bátarnir voru sjósettir og komið fyrir á flotbryggjunum í smábátahöfninni á Suðureyri. Um borð í bátunum eru þeir Kjartan Þór Kjartansson og Guðmundur Svavarsson.

Kveðja

Róbert 

Endurbætur á Súgfirðingasetrinu að hefjast

Þessa stundina er verið að slá upp vinnupöllum utan um Aðalgötu 18 (Súgfirðingasetrið) en A setridframundan eru endurbætur sem nokkrir sjálfboðaliðar munu framkvæma frá og með 1. maí nk. Til stendur að setja nýtt þak á húsið og lagfæra múrhúð að utan. Óvíst er hvað endurbæturnar muni taka langan tíma en Súgfirðingafélagið í Reykjavík á ákveðin sjóð til framkvæmda sem vonandi dugir að mestu leiti fyrir kostnaði. Vitað er að formaður og gjaldkeri félagsins, Sigurþór og Atli Ómarsynir, mæta galvaskir ásamt fríðu föruneyti á næstu dögum vestur í Súgandafjörð með hamra og sagir, klárir í að ráðast í þetta verkefni enda liggur húsið undir skemmdum og er verulega farið að láta á sjá að utan.

Kveðja

Róbert

Lilja Rafney á þing fyrir VG

Lilja Rafney Magnúsdóttir, súgfirski þingmaður VG kom til Suðureyrar í dag en hún náði kjöri í annaðLilja-Rafney-Magnusdottir2 sætið á lista VG í Norðvestur kjördæmi ásamt Jóni Bjarnasyni og datt inná þing með glæsilegri kosningu. Lilja er nú ekki að stíga sín fyrstu spor í pólitík en hana þekkja velflestir Vestfirðingar sem baráttukonu verkalýðsins til margra ára.

Aðspurð um breytingar á búsetu vegna þessarar nýju stöðu, kvaðst Lilja þurfa að skoða húsnæði á Reykjavíkursvæðinu næstu daga en hún ætlar þrátt fyrir störf sín fyrir sunnan að koma vestur eins oft og hún getur enda á hún fjölskyldu á Suðureyri. Eiginmaður Lilju er Hilmar Gunnarsson vörubifreiðastjóri og vélaviðgerðamaður. Ég óska Lilju til hamingju með glæstan árangur í alþingiskosningunum og baráttukveðjur á þingið.

Ljósmynd: bb.is

Kveðja

Róbert


Pönnukökur í tilefni dagsins

Konur úr Kvenfélaginu Ársól á Suðureyri heimsóttu vinnustaði í morgun með nýbakaðar pönnukökur Sumard 27í tilefni Sumardagsins fyrsta en það er gömul hefð að kvenfélagið skapi sér fjáröflun með þessum skemmtilega hætti. Sumir heimamenn sögðu við mig að pönnukökurnar myndu án efa vera pantaðar af einstaklingum væri sá möguleiki í boði. Enn snjóar og snjóar í Súgandafirði og einhverjir farnir í kosningarkaffi til Ísafjarðar. Eins og einn heimamaður sagði á förnum vegi "það þarf engin að elda í dag, nóg að borða á kosningarskrifstofunum."

Þrátt fyrir ofankomu og leiðinda veður á þessum fyrsta degi sumars tekur fólk þessu með jafnaðargeði og brosir. Ég hitti hana Debbie sem var að losa lyftarann sinn á planinu á milli áhaldahússins og Klofnings og hún var hin hressastaSumard 11 enda nýbúin að sporðrenna pönnukökum frá kvenfélaginu. Nokkrir starfsmenn Klofnings voru að spyrða keilur í dag sem keyptar voru á markaði. Þær yrðu síðan hengdar upp á hjallana í Önundarfirði áður en helvítis flugan vaknar af vetrardvalanum.

Síðan hitti ég tvær hressar hnátur að renna sér í snjónum á Sumard 23sundlaugarkút og þær sögðu að það væri nær að segja "Gleðilegan vetur" í stað gleðilegs sumars. Svo tóku þær eina bunu niður brekkuna þar sem áður stóð húsið þeirra Pálínu og Sturla Ólafs. Veðurspáin er ekki sérlega hagstæð fyrir kvöldið og morgundaginn, áframhaldandi norðanátt með ofankomu. Sumarið er alla vega ekki á bakvið næsta hól í bili Tounge

Fleiri myndir frá Sumardeginum fyrsta er að finna í myndaalbúminu á síðunni.

Með sumarkveðju

Róbert

Sumardagurinn fyrsti opnaði með snjókomu

Það hefur oft verið sagt hér vestra að Sumardagurinn fyrsti sé of snemma á dagatalinu miðað við Sumard 1 1árferði s.l. áratugina og enn lengra aftur ef menn vilja rýna betur í staðreyndir. En íbúar á Suðureyri og í Súgandafirði vöknuðu upp í morgun á Sumardaginn fyrsta með norðan snjókomu en nú er um 10 cm jafnfallinn snjór um þorpið og eflaust einhverjir komnir á sumardekkin. Það kemur íbúum hér ekkert á óvart að það snjói vel í apríl enda hefur það gerst svo lengi sem elstu menn muna.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni mældist 2,4 stiga frost á Seljalandsdal við Ísafjörð og 1,9 stiga frost í Árnesi og 1,3 stiga frost að Hjarðarlandi í Árnessýslu. Tekkið skal fram í öllum tilvikum er um mælingu í tveggja metra hæð að ræða og ekki ólíklegt að frost hafi verið meira við jörð.

Í Reykjavík fór hitinn lægst í 0,9 gráður í nótt en við jörðu fór hann lægst í 1,1 stigs frost. Margir Sumard 1 2ökumenn fóru ekki varhluta af hálkunni í morgunsárið og hefur verið mikið annríki hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna fjölda umferðaróhappa.

Gleðilegt sumar þrátt fyrir að veturinn sé hér enn Cool

Kveðja

Róbert

Jens Daníel Holm maður leiksins

Nýverið hittust nokkrir Stefnismenn í Reykjavík til að horfa á 26 ára gamlan knattspyrnuleik sem S5tekinn var upp á myndband þegar liðið lék við Aftureldingu á Skeiðinu á Ísafirði 18. júní 1983 í 4 deild Íslandsmóts KSÍ. Leikurinn var spennandi og ágætlega leikinn. Ákveðið var að sýna leikinn í heimabyggð liðsins, Suðureyri um páskana og var nokkrum hressum Stefnismönnum smalað saman í kaffistofu Íslandssögu til að bæði horfa á leikinn sem og að afhenda verðlaun "Maður leiksins" 26 árum eftir leikinn. Björn Guðbjörnsson sagði gestum frá markatölum og leiktíð Stefnis þetta sumarið og skólastjórinn okkar, Magnús S. Jónsson fór yfir sögu knattspyrnu Stefnis frá "Gullaldarárunum" sem þeir sem eru komnir yfir fimmtugt muna vel eftir að hafa tekið þátt í.

Eftir leikinn var "Maður leiksins" valinn en það kom í hlut Jens Daníels Holm sem stóð sig frábærlega sem markvörður í umræddum leik við Aftureldingu en þess má geta að leikurinn fór 3-3. Það var Björn S8Guðbjörnsson sem afhenti Jens verðlaunagrip að launum og fékk hann klapp frá viðstöddum.

Ég hef bætt nýjum ljósmyndum frá seinni áhorfi leiksins sem fram fór á Suðureyri á Föstudaginn langa inn í albúm á síðunni sem heitir Stefnir & Afturelding.

Kveðja

Róbert


Góð svartfuglsveiði

Vestfirskar skyttur sem hafa farið á svartfuglsveiðar sl daga og vikur hafa veitt ágætlega og sumir F1 800vel. Talsvert er af svartfugli út af Ritnum og við Aðalvíkina sem og út frá Grænuhlíð og á landgrunninum við Skálavík og Deildina. Um s.l. helgi fór undirritaður með nokkra hressa fjölmiðlamenn úr Reykjavík á svartfuglsveiðar á vegum Fisherman (Hvíldarkletts ehf) á Suðureyri og var veiðin ásættanleg þrátt fyrir nokkuð dreifðan fugl á miðunum. Alls veiddust um 140 fuglar á Bobby 11 og að auki rúmlega 60 fuglar á Bobby 3 en þar um borð var Dúi Landmark kvikmyndargerðarmaður með byssu og kvikmyndavél ásamt skipstjóranum Guðmundi Svavarssyni. Sjóstangir voru líka brúkaðar en það örlaði ekki á narti. Talið er að mikið sé af síli og loðnu á miðunum og þá liggur fiskurinn í mikilli matarveislu þar. Eftir veiðiferðina var boðið til villibráðarveislu á veitingastaðnum Talisman sem er í eigu Fisherman. Var veiði dagsins elduð ásamt ýmsu öðru góðgæti.

Fisherman leigir út Bobby-bátana á svartfuglsveiðar fyrir áhugasama veiðimenn og konur fyrir sanngjarn verð. Báturinn kostar 20.000 kr dagurinn fyrir utan olíu og er nóg af lausum bátum fyrir þá sem vilja komast á veiðar. Tilvalið fyrir 3-F3 8005 manna hóp að sameinast um einn bát og ef menn kjósa að fá með sér leiðsögumann, þá er rukkað aukalega fyrir það. Áhugasamir geta haft samband við Róbert Schmidt í síma 8404022.

Á efri myndinni eru þeir Jakob B. Grétarsson, Jón Mýrdal, Mikael Torfason og Róbert Schmidt. Atli Grétarsson var jafnfram á sama bát en hann tók ljósmyndina.

Á neðri myndinni er Svavar Guðmundsson, Magðalena Einarsdóttir, Guðmundur Svavarsson og Dúi Landmark.

Kveðja

Róbert

Sæluhelgarlög óskast til Mansavina

Mansavinir á Suðureyri leita nú eftir Sæluhelgarlaginu 2009 en að vanda gefst almenningi kostur árabbabikarinn að senda inn lög í keppni um lagið sem verður hljóðritað fyrir hina árlegu Sæluhelgarhátíð. Skilyrði eru sem fyrr að lagið má ekki hafa heyrst áður og textinn verður að einhverju leyti að fjalla um Sæluhelgina, Súgandafjörð eða Suðureyri. Lagahöfundar eru beðnir um að senda inn hljóðritaðan disk, í því sem næst endanlegri útgáfu, í lokuðu umslagi merkt með dulnefni en rétt nafn þarf að fylgja með í öðru umslagi ásamt símanúmeri.

Frestur til að skila inn lagi er til sumardagsins fyrsta en tilkynnt verður um sigurlagið á laugardaginn 2. maí. Þeir lagahöfundar sem áhuga hafa getað komist í stúdíó hjá hljóðverinu Tankinum í Önundarfirði með því að hafa samband í gegnum vefinn tankurinn.com. „Við skorum á sem flesta að senda inn lög en keppnin hefur legið niðri undanfarin tvö ár vegna skorts á þátttöku. Það er því spurning hvort fólk hafi notað þann tíma til að vinna að lögum“, segir Ævar Einarsson, forsprakki Mansavina

Allar nánari gefur Ævar í síma 893 0960. Væntanlegir keppendur eru beðnir um að senda lögin til Ævars Einarssonar.

Heimild: www.bb.is
Ljósm: R.Schmidt 

Næsta síða »

Höfundur

Róbert Schmidt
Róbert Schmidt

Fæddur Súgfirðingur og þykir vænt um fjörðinn og fólkið heima. Netfangið mitt er: robert@skopmyndir.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband