Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Framkvæmdargleðin í hámarki á Suðureyri

Eins og íbúar og gestir Suðureyrar hafa tekið eftir, þá ríkir hér mikil framkvæmdargleði því Blokkinvinnupallar eru víða um kauptúnið og hamarshöggin bergmála í fjöllunum alla daga. Allt byrjaði þetta með Súgfirðingasetrinu en sjálfboðaliðar tóku húsið algerlega í gegn að utan, settu nýtt þak á og lagfærðu múrhúð að utan og síðan var húsið málað. Vinnupallarnir fóru ekki langt, heldur yfir í næsta hús, Aðalgötu 16, sem er gamla Suðurver og er í eigu Elíasar Guðmundssonar. Skipt var um þakjárn á húsinu og sett ný múrklæðning yfir gamla efnið. Snorri Sturluson lét þá Spýtu-menn fjarlægja strompinn af sínu húsi fyrst þeir voru þarna í grenndinni. Nú er verið að leggja lokafrágang á klæðningu á Aðalgötu 21, efri húsgafli Ásu Friðbertar. Adalgata

Túngötu-blokkin er nú umvafin vinnupöllum en Ísafjarðarbær ræðst þar í miklar framkvæmdir með því að skipta um gler, lagfæra múrhúð o.fl enda ekki þörf á. Síðan er hann Ebbi mættur vestur með hamarinn sinn ásamt Steina vini sínum en þeir ætla að skipta um þakjárn á Hlíðarvegi 5 sem er húsið hans Steina Imbu. Það verk mun taka vel á annan mánuð að sögn Ebba sem var hinn hressasti þegar ég hitti hann um helgina. Einnig er verið að helluleggja gangstétt við Félagsheimili Súgfirðinga og Hvíldarkletts sem mun ná alveg út að bílastæðinu fyrir framan Súgfirðingasetrið. Grétar Eiríksson er nýfarinn frá Suðureyri en hann og sonur hans ásamt Burkna smið skiptu um húsgaflinn sem snýr út að Skólagötunni. Það verk tók þá rúma viku.Brekkustigur

Ekki má gleyma Brekkustíg 7 (Sæluhelgarhúsið svokallaða) en það hús ætlar Elías Guðmundsson að byggja upp frá grunni og bætir öðru húsi við Brekkustíginn að ofanverðu. Áætlað er að það verk klárist á næsta ári. Eins og upptalningin sýnir hér glögglega, þá er óhætt að fullyrða miðað við íbúafjölda Suðureyrar að framkvæmdargleðin er hér í hámarki og líklega sú mesta á landinu eins og sakir standa. Meðfylgjandi myndir tók undirritaður sl daga og vikur sem sýnir að hér skortir ekki verkefni né vinnu.


Kveðja
Steini Imbu
Róbert
Ljósmyndir: Róbert Schmidt

Vogmær í Suðureyrarhöfn

Þessi stóra vogmær fann undirritaður í smábátahöfninni, fyrir neðan kirkjuna kl 08 í morgun en ætla má Robbi Vogmaer IIað fiskurinn hafi synt eða rekið á land í gærkveldi eða nótt þar sem liturinn var að mestu horfinn af honum. Vogmærin mældist 187 sm að lengd, 38 sm að breidd og vó 7,5 kg. Önnur vogmær fannst í gærkveldi í smábátahöfninni sem var talsvert minni. Vogmærin er mjög sérkennileg í útliti eins og myndirnar bera með sér og óvenju stór en fiskurinn getur verið allt að 3 metrar að lengd samkvæmt Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar. Grípum niður í kafla í bókinni um þennan merkilega fisk:

Vogmærin sem stundum er nefnd vogmeri slæðist stöku sinnum í veiðarfæri sjómanna hér við land. Robbi Vogmaer 1Vogmærin kemur við sögu í Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar. Þannig lýsa þeir henni:

Vogmerin er litfögur. Hún er svört fyrir framan augun og á milli þeirra, einnig ofan á höfði og hnakka. Stór kringlóttur, svartur blettur er fyrir ofan raufina og einnig fyrir ofan hryggjarliðina, og svo virðist sem fiskurinn sé svartur í gegn. Bakugginn, stirtlan og sporðurinn er allt hárautt á lit, en að öðru leyti er hún silfurgljáandi. Vogmærin getur orðið nokkuð stór eða um 3 metrar á lengd. Heimkynni hennar eru í Norðaustur-Atlantshafi og hún virðist vera algeng allt í kringum Ísland, nema undan ströndum Norðausturland og Austurlands. Vogmær finnst undan ströndum Noregs, í Norðursjó og umhverfis Bretlandseyjar og allt suður til Madeira.

Sárafáar rannsóknir hafa verið gerðar á lífsháttum vogmeyjarinnar. Menn Vogmaer IIItelja að hún sé fyrst og fremst miðsævisfiskur og hefur hún komið í veiðarfæri skipa á 64-640 metra dýpi. Vogmeyjar halda sig sennilega í smáum torfum og einstaka sinnum reka slíkar torfur á land. Á ofanverðri 19. öld rak 100-200 vogmeyjar á land við Arnarfjörð.

Fæða vogmeyjarinnar er einkum rækja, smokkfiskar og ýmsar tegundir smáfiska. Ekki er vitað hvenær hún gýtur en nýgotnar hrygnur hefur rekið á land í maílok. Sjómenn hafa fengið vogmeyjur í flotvörpu djúpt undan Reykjanesi og hugsanlegt þykir að þar megi finna væna hrygningarslóð hennar.

Í Ferðabók Eggerts og Bjarna er gerð grein fyrir nafngift fisksins. Þar segir að það sé eðli vogmeyjarinnar að koma með flóðinu upp að landi í grunnum víkum og vogum, sérstaklega þar sem botngerðin er sendin. Hún er svo litfögur og mjúk að hún er kennd við mey.

Ps. þess má geta að stórstreymi er um þessar mundir hér vestra.

Kveðja

Róbert Schmidt
Ljósmyndir: Róbert Schmidt

Frá Sjómannadeginum

Sjómannadagshelgin hér á Suðureyri heppnaðist mjög vel en keppt var í kappróðri og knattspyrnu 89á laugardeginum og er óhætt að segja að kappróðurinn skilaði af sér talsverðu skemmtanagildi því þrír bátar lenntu í straumnum við hafnargarðinn og soguðust inn fyrir. Þeir voru dregnir á hraðbát aftur til hafnar og allir komu þeir aftur Wink   Einnig var Íslandssaga með opið hús og bauð uppá reyktan rauðmaga, harðfisk, kaffi og gos fyrir gesti. Veður var einmuna gott á laugardeginum og mikil stemning fyrir utan FSÚ þegar boðið var uppá glæsilega fiskiveislu til handa gestum og gangandi. Söngdagskrá var jafnframt í félagsheimilinu á meðan fiskiveislan stóð yfir og undir miðnætti var sjóaraball á gamla mátann.

Sunnudagurinn rann upp með þoku og kaldri hafgolu en skemmtidagskráin 18fór samt fram á hafnarsvæðinu þar sem keppt var í kararóðri, reipitogi, kappbeitingu, brettaboðhlaupi og karaboðhlaupi barna. Verðlaunaafhending fór fram seinni partinn áður en farið var í hópsiglingu með heimabátum Súgfirðinga. Þakka ber sérstaklega Sjómannadagsráði og þeim sem lögðu hönd á skipulagningu helgarinnar sem og sjómönnum sem fóru með gesti í kvöldsiglinguna.

Myndir eru óðum að hlaðast inn á myndaalbúmið.
ATH vinsamlega virðið höfunarrétt ljósmyndara.

Kveðja

Róbert
robert@skopmyndir.com25

Kjartan Þór byrjaður að róa á Rósborgu ÍS

Kjartan Þór Kjartansson fór í sína fyrstu sjóferð í sumar á Rósborgu ÍS í gærdag í renniblíðu. Ég Kjartan IIImætti honum þar sem hann sat í makindum sínum með þessa fínu sjóræningjahúfu á kollinum og lét rúllurnar vinna verkin.

Kveðja

Róbert

Sjómannadagurinn á Suðureyri

Eftirfarandi tilkynning um dagskrá Sjómannadagsins á Suðureyri barst frá Sjómannadagsráði og hljóðar eftirfarandi:

Laugardagur:

Kl. 14:00 Firmakeppni í knattspyrnu á sparkvellinum við Höfðastíg.
Kl. 16:00 Kappróður í höfninni.
Kl. 17-19 Opið hús hjá Íslandssögu hf. (allir fá þar eitthvað fallegt í það minnsta fisk og fjör)
Kl. 19-21 Fiskismakk fyrir alla í Félagsheimili Súgfirðinga á meðan birgðir og húsrúm duga.
(Kannski verða óvæntar uppákomur t.d. Öskubuskurnar með fallegu norninni gætu flutt Eurovision ballöður- hver veit?)
Kl. 23-03 Alvöru sjómannadansleikur í Félagsheimili Súgfirðinga. Dansskórnir dregnir fram og gamla ballstemningin rifjuð upp með stæl. Gummi Hjalta & Stuðboltarnir halda uppi rífandi stemningu til kl 03. Miðaverð á ballið kr. 1.000

Sunnudagur:

Kl. 13:45 Skrúðganga til kirkju frá Bjarnarborg.
Kl. 14:00 Sjóaramessa í Suðureyrarkirkju.
Kl. 15:00 Skemmtidagskrá á hafnarsvæðinu undir öruggri handleiðslu Sturlu Páls Sturlusonar. M.a. verður keppt í kappbeitingu, reipitogi, kararóðri, brettahlaupi og karaboðhlaupi fyrir yngri kynslóðina.
Kl. 20:00 Kvöldsigling um Vestfjarðarmið og Súgandafjörð. Þeir sem hyggjast stunda strandveiðarnar í sumar eru sérstaklega velkomnir.

Sjómannadagsráð

Líf og fjör á Sjómannadaginn

Það verður líf og fjör á Sjómannadaginn hér á Suðureyri um næstu helgi en búið er að ráða sjo_78hljómsveit sem skipuð er Guðmundi Hjaltasyni & co en þeir munu leika fyrir dansi á laugardagskvöldið en á undan verður heljarinnar fiskiveisla í boði Íslandssögu fyrir utan Félagsheimili Súgfirðinga. Heyrst hefur að brottfluttir Súgfirðingar muni fjölmenna vestur um helgina enda hefur Sjómannadagurinn á Suðureyri alltaf verið líflegur og skemmtilegur. Arnar Guðmundsson og róðrasveinar hans náðu kappróðrarbikarnum í fyrra og líklegt er að áhöfn Hrefnu ÍS muni leggja allt í sölurnar til að endurheimta hann á hilluna hans Sigurvins á Hjallaveginum. Ítarleg dagskrá Sjómannadagsins verður sett hér inna skamms.

Kveðjaveisla_6

Róbert

Ljósmyndir: Róbert Schmidt


Skólabörn hjálpa til við gróðursetningu

Nemendur Grunnskóla Suðureyrar gróðursettu fjöldann allan af plöntum nýverið ásamt kennurum skograektskólans í gróðurreitnum fyrir ofan tjörnina en Arnar Guðmundson stjórnaði verkefninu örugglega eins og alltaf. Bæði drengir og stúlkur lögðu hönd á plóginn og unnu vel þennan morgun þrátt fyrir smávægilega vætu. Að lokinni gróðursetningu var boðið uppá grillaðar pulsur við skólann sem nemendur þáðu með þökkum. Fleiri myndir eru í myndasafni á forsíðunni.

Kveðja

Róbert

Ljósmyndir: Róbert Schmidt


Höfundur

Róbert Schmidt
Róbert Schmidt

Fæddur Súgfirðingur og þykir vænt um fjörðinn og fólkið heima. Netfangið mitt er: robert@skopmyndir.com

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband