25.3.2010 | 15:38
Páskamót í blaki á Suðureyri
Haldið verður í annað sinn Páskamót í blaki í íþróttahúsinu á Suðureyri laugardaginn 3. apríl. Blakmótið verður eins konar skemmtiblak þar sem ungir og aldnir leiða saman hesta sína til að hafa gaman af. Mótið hefst kl 11:00 um morguninn og er þátttökugjald kr 300 á einstakling. Mótið er fyrir 14 ára og eldri. Skráning þarf að klárast kl. 15:00 á Föstudaginn langaSkírdag til Önnu Bjarna í síma: 897-5153.
Þátttakan sker úr um hvort mótið verður liðakeppni eða einstaklingskeppni. Páskablakið er tilvalin skemmtun fyrir þá sem vilja sprikkla aðeins og eiga góðan dag með skemmtilegu fólki, komast í sund á eftir og slaka á í heitu pottunum og spjalla saman. Vegleg verðlaun verða í boði eins og síðast. Hvetjum alla áhugasama 14 ára og eldri að skrá sig til leiks sem fyrst.
Munið skráningasímann: 897-5153
Kveðja
Róbert Schmidt
S: 8404022
Flokkur: Bílar og akstur | Breytt 26.3.2010 kl. 17:17 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.