5.7.2010 | 10:48
Sjö lúður á land
Alls hafa veiðst sjö lúður hjá Hvíldarklettsbátunum frá Suðureyri og Flateyri það sem af er sumars. Af þessum sjö eru 4 stórlúður en frá Suðureyri hafa veiðst 57 kg og 80 kg lúður en frá Flateyri 108 kg og 110 kg flykki. Síðan hafa veiðst þrjár smálúður á bilinu 3-6 kg. Er þetta mun betri lúðuveiði en t.d. á síðasta ári en þá vó stærsta lúðan 77 kg.
Stórþorskar veiðast vel á sjóstönginni og algengt er að sjá þorska á bilinu 20-26 kg að þyngd eða um 145 sm að lengd þeir stærstu. 16 kg skötuselur veiddist nýverið á stöng frá Suðureyri en fjörðurinn er víst fullur af skötusel.
Sjóstangavertíðin hefur gengið mjög vel og mikið að gera. Öll hús og bátar hafa verið fullbókuð frá því eftir miðjan maímánuð. Síðustu hóparnir fara af landi brott um miðjan september nk.
Texti og myndir:
Róbert Schmidt

Flokkur: Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 10:53 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.