14.12.2008 | 14:23
Frábær skötuveisla
Skötuveislan hjá Eyþóri Eðvarðs á Álftanesinu heppnaðist frábærlega en alls mættu 20 sprækir
súgfirskir karlmenn sem tóku hressilega til matar. MERLO, fyrirtæki Magnúsar Erlingssonar gaf skötuna í veisluna en skatan kom frá Jóa Bjarna á Suðureyri. Einnig var boðið uppá saltfisk fyrir þá sem ekki eru enn búnir að læra skötuát. Farið var með vísur í tilefni dagsins og menn kepptust við að skjóta á hvern annan í bundnu máli en Sturla Eðvarðs sló í gegn með sínum snilldar kveðskap. Sögur að vestan voru líka rifjaðar upp og mikið hlegið og skálað.
Myndasýningu var síðan skellt á stofuvegginn þar sem farið var yfir síðustu karlaveislur hér á höfuðborgarsvæðinu. Boðið var uppá beykireykt hreindýrakjöt, heitreyktan svartfugl og reyktar heiðagæsabringur með
melónu og róspiparsósu og var það allt étið upp til agna eins og búist var við. Benni Bjarna kíkti í heimsókn og Kitti Kalli kom og smalaði nokkrum ballþyrstum köllum í leigubílinn sinn og skutlað þeim á Players.
Ég setti inn 57 myndir í sérstakt myndaalbúm á síðunni.
Njótið vel.
Kveðja
Róbert

Myndasýningu var síðan skellt á stofuvegginn þar sem farið var yfir síðustu karlaveislur hér á höfuðborgarsvæðinu. Boðið var uppá beykireykt hreindýrakjöt, heitreyktan svartfugl og reyktar heiðagæsabringur með

Ég setti inn 57 myndir í sérstakt myndaalbúm á síðunni.
Njótið vel.
Kveðja
Róbert
Flokkur: Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 14:25 | Facebook
Af mbl.is
Fólk
- Við vöknum ekki fyrir minna en 10.000 dali á dag
- Hætt að selja Labubu í Bretlandi eftir slagsmál
- Súrrealisminn leynist víða
- Búið spil hjá Martin og Johnson
- Efnilegir höfundar styrktir
- Hildur Guðnadóttir valinn hátíðarlistamaður
- Íslensk stuttmynd hlaut alþjóðleg dómnefndarverðlaun
- Myndskeið af íslenskum og kenískum fána vekur athygli
- Undrandi og djúpt snortin
- Frænka Joes Bidens oft komist í kast við lögin
Athugasemdir
Úff maður fær bara vatn í munninn að sjá þessa skötu, nú þegar farin að hlakka til Þorláksmessu og fá skötuna, allavega búin að gera mörinn. Þetta hefur verið hin besta veisla sér maður. Flott hjá ykkur strákar í Stefni.
Anna Bjarnad (IP-tala skráð) 15.12.2008 kl. 00:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.