3.1.2009 | 13:27
Fögnuðu 40 ára brúðkaupsafmæli á Gamlársdag
Hjónakornin Valgerður Hallbjörnsdóttir og Grétar Schmidt áttu 40 ára brúðkaupsafmæli á Gamlársdag en það var sr Jóhannes Pálmason sem gaf þau saman á Suðureyri á Gamlársdag árið 1968 en þá voru þau bæði 21 árs gömul en höfðu verið saman í 5 ár áður en þau giftu sig. Þau hafa því byrjað saman aðeins 16 ára gömul. Þess má geta að sr Jóhannes bæði skírði, fermdi og gifti Völu og það er nú aldeilis sérstakt verður nú að segjast.
En þau hjónakornin áttu góðan dag því börnin þeirra, makar og barnabörn héldu fyrir þau matarveislu í tilefni dagsins og áttu þau ánægjulega stund saman þetta kvöld. Eins og margir Súgfirðingar skelltu þau sér síðan á áramótadansleik í Félagsheimili Súgfirðinga og tvistuðu þar eins og þeim er einum lagið enda góðir dansarar. Þrátt fyrir allt fjörið, þá héldu Grétar og Vala matarboð á Nýársdag og tóku á móti nýja árinu með bjartsýni og gleði.
Til hamingju með 40 ára brúðkaupsafmælið elsku Vala og Grétar. Megi gæfan vera ykkur áfram hliðholl í framtíðinni.
Myndirnar voru teknar í brúðkaupi Oddnýjar og Ingólfs fyrir fáeinum árum síðan.
Kveðja
Róbert Schmidt

Flokkur: Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 13:31 | Facebook
Athugasemdir
Ég vil senda gömlum vinum mínum á sudureyri hjartans hamingjuóskir med tennann stóra dag.Aldrey vard ég svo lánsöm ad hitta SR.Jóhannes en heyrt mikid um hann talad med virdingu.
Hjartanskvedjur.
Gudrún Hauksdótttir, 3.1.2009 kl. 15:21
Ég óska heiðurshjónunum Grétari og Völu innilega til hamingju með 40 ára brúðkaupsafmælið
Sigrún Jónsdóttir, 5.1.2009 kl. 23:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.