20.1.2009 | 11:38
Góublótið í Félagsheimili Súgfirðinga á ný
Fréttir herma að Góublótsnefndin (karlarnir) á Suðureyri hafi ákveðið nær einróma að færa Góublótið aftur í gamla félagsheimilið (FSÚ) til að ná réttri stemningu þrátt fyrir að þröngt verði þar á þingi. Síðast liðin ár hafa þorrablótin á Suðureyri verið haldin í íþróttahúsinu en sumir segja að hljómurinn þar sé ekkert í líkingu við gamla góða félagsheimilið. Þetta eru tíðindi fyrir Súgfirðinga og án efa mikil gleðitíðindi. Hús- og skemmtinefndir eru í óða önn að skipuleggja, skrá og æfa þessa daganna og menn mega búast við léttum og föstum skotum í gamansömum tón þegar stóra stundin rennur upp.
Þegar síðast fréttist var búið að skrá 160 manns á Góublótið á Suðureyri og víst er að þröngt mega sáttir sitja. Það verður spennandi að fylgjast með því hvernig þetta fer fram og hvernig það verður að koma aftur á blót í félagsheimilinu. Meira um það síðar.
Róbert

Flokkur: Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 11:40 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.