24.3.2009 | 14:19
Hvíldarklettur auglýsir eignir sínar til sölu
Já, ég get staðfest það en það er ekki búið að klára eitt né neitt, segir Elías Guðmundsson, framkvæmdastjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Hvíldarkletts ehf. á Suðureyri, aðspurður hvort einhverjir aðilar hafi sýnt eignum fyrirtækisins áhuga, en allar eignir Hvíldarkletts voru settar á sölu í síðustu viku. Elías segist ekki sjá fram á annað en starfsemi fyrirtækisins verði áfram í sumar. Hann segir aðilana, sem eru í viðræðum við fyrirtækið um kaup á eignum þess, vera tengda ferðaþjónustubransanum en Elías vildi ekki tjá sig um hvort Hvíldarklettur kæmi til með að sameinast ferðaþjónustufyrirtækinu Sumarbyggð í Súðavík.
Heimildir www.bb.is
Heimildir www.bb.is
Flokkur: Bílar og akstur | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.