28.4.2009 | 18:06
Bobby bátarnir sjósettir á Suðureyri
Starfsmenn Hvíldarkletts ehf sjósettu alls 11 Bobby báta á Suðureyri í dag fyrir komandi sjóstangaveiðivertíð sem hefst í maímánuði. Stefnt er að sjósetja hina 11 Bobby bátana sem eru á Flateyri innan skamms. Fyrstu viðskiptavinirnir eru væntanlegir fyrri part maí mánaðar en uppúr miðjum maí fer vertíðin í gang af fullum krafti og er ágætlega bókað í júní, júlí og fram í ágúst en búist er við að síðustu gestirnir fara af landi brott í september. Verið er að undirbúa bátaflotan og gera þá klára fyrir haffærni en talsverð vinna liggur að baki varðandi viðhaldsþáttinn á 22 bátum. Guðmundur Svavarsson stjórnar því verki með þekkingu og reynslu.
Búið er að færa þrjú sumarhús sem staðsett voru í miðju kauptúninu inn að knattspyrnuvellinum við Lónið þar sem þau munu standa um ókomna framtíð. Enn er eftir að leggja lagnir og tengja bústaðina á nýju uppfyllingunni sem verður gert um leið og snjórinn er farinn og veður verður skaplegt. Komandi sjóstangaveiðivertíð leggst vel í mannskapinn og verið er að leggja síðustu hönd á skipulagningu og frágang áður en erlendu veiðimennirnir mæta vopnaðir stöngum og skutlum með "stórlúðu" glampann í augunum.
Myndirnar tók undirritaður í dag þegar Bobby bátarnir voru sjósettir og komið fyrir á flotbryggjunum í smábátahöfninni á Suðureyri. Um borð í bátunum eru þeir Kjartan Þór Kjartansson og Guðmundur Svavarsson.
Kveðja
Róbert

Flokkur: Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 18:07 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.