30.4.2009 | 22:57
Fyrsta kindin á Bæ bar fimm lömbum
Samkvæmt heimildum bar fyrsta kindin á Bæ í Súgandafirði í gærdag (miðvikudag) fimm lömbum sem verður að teljast ansi mikið ef miðað er við venjulegan sauðburð. Hjónin Ingibjörg og Karl Guðmundsson eru ábúendur á Bæ og er greinilegt að vorið er komið í sveitina hjá þeim hjúum. Frjósemin virðist vera einstaklega mikil hjá þessari kind á Bæ og forvitnilegt verður að fylgjast með hvernig sauðburðurinn þróast þar áfram næstu daga og vikur.
Á myndunum eru Kalli í Bæ að marka lömbin sín og Birta Rós og Matthildur gefa lambi mjólk úr pela.
Myndirnar tók Guðrún Margrét Karlsdóttir
Kveðja
Róbert
Flokkur: Bílar og akstur | Breytt 2.5.2009 kl. 19:15 | Facebook
Af mbl.is
Innlent
- Umræða um kostnað við fatlað fólk niðurlægjandi
- Giftu sig að ásatrúarsið í Svíþjóð
- Felur í sér mjög óeðlilegt greiðslufyrirkomulag
- FÍB kvartar til Samkeppniseftirlitsins
- Gengur lengra norður en áður
- Uppnám í allsherjar- nefnd vegna Víðis
- Snjókoma til fjalla norðanlands
- Lögðu hald á piparúða
- Afgerandi breytinga þörf
- Andlát: Unnar Stefánsson
- Lækka álagningu á móti hækkunum
- Hópur eldri borgara hefur það skítt
- Ég vissi að pabbi væri farinn
- Dómur vegna tilraunar til manndráps mildaður
- Jóhann boðar róttækar breytingar
Athugasemdir
Þetta er reyndar Krístján Logi en asskoti líkur mér samt :)
Matthildur Valdimarsdóttir (IP-tala skráð) 5.5.2009 kl. 13:12
hahaha já Matta hann er alveg eins og þú - gaman að því - flott mynd af þeim í sveitinni hjá ömmu og afa
Vala (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 11:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.