17.7.2009 | 00:49
Framkvæmdastjóri óskast
Hollvinasamtök Félagsheimilis Súgfirðinga HOFSÚ auglýsa eftir aðila til þess að halda utanum rekstur FSÚ. HOFSÚ gerði nýverið rekstrarsamning við eigendur FSÚ til þriggja ára. Þar skuldbindur HOFSÚ fólk til þess að reka FSÚ og jafnframt að vinna að endurbótum hússins. Eitt af þeim markmiðum sem stjórn HOFSÚ hefur sett sér er að fram fari a.m.k einn viðburður í hverjum mánuði í FSÚ. Til þess að svo megi fara þurfum við á einstaklingi að halda sem að heldur utanum starfið.
Kröfur sem að stjórn HOFSÚ gerir til þessa einstaklings er að hann sé jákvæður Súgfirðingur sem vill taka að sér starfið meira af hugsjón en það að það verði lifibrauð viðkomandi. Ekki verður um að ræða miklar launagreiðslur, nema að tilkomi miklar tekjur úr rekstrinum, semsagt árangurstengt. Þá mun þessi einstaklingur vinna með stjórn HOFSÚ að þeim uppbyggingaráætlunum sem fyrirhugaðar eru á næstu árum.
Áhugasamir aðilar eru vinsamlegast beðnir um að setja sig í samband við Óðinn Gestsson formann stjórnar HOFSÚ til skrafs og ráðagerða um starfið. Annaðhvort í símann minn 8922482 eða þá með rafpósti á odinn@icelandicsaga.is
Fh stjórnar HOFSÚ
Óðinn Gestsson.

Flokkur: Bílar og akstur | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.