Bloggfærslur mánaðarins, október 2008
30.10.2008 | 15:10
Færeyjar
Frændur okkar Færeyingar hafa lánað þjóðarbúinu nokkra milljarða í kreppunni enda eru þeir vinir okkar. Eins og allir Súgfirðingar vita, þá bjuggu margir Færeyingar á Suðureyri um tíma og einhverjir búa þar enn. Vegna þeirra miklu tengsla á milli Súgfirðinga og Færeyja, þá hef ég stofnað sérstakt myndaalbúm frá Færeyjum hér á síðuna. Myndirnar tók ég í ferð minni á Ólafsvöku fyrir nokkrum árum síðan. Heimsótti Eyjon og Eilín sem og Sigga bróðir hans í Þórshöfn og fjölskyldu hans. Var mér boðið til veislu og þar flaut allt í ákavíti og skerpukjöti. Meiriháttar gaman að sækja Færeyjar heim og ég skora á alla að skella sér þangað í heimsókn sem allra fyrst.
Lengi lifi Færeyjar
Hér er svo tengill á albúmið: http://sudureyri.blog.is/album/fareyjar/
Róbert
robert@skopmyndir.com
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 15:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.10.2008 | 23:54
Nýr vettlingur á Suðureyri
Þegar ég var að grúska í gömlum blaðaúrklippum rakst ég á litla saklausa úrklippu frá 3. maí 1990 sem hljóðar eftirfarandi:
NÝR VETTLINGUR Á SUÐUREYRI
-fimm listar í framboði
Fram er kominn nýr listi á Suðureyri sem nefnist Nýr vettlingur. Þetta er fimmti listinn sem kemur þar fram nú fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Á síðasta kjörtímabili voru þar aðeins tveir listar, það er B-listi Framsóknarflokks og L-listi óháðra. Í ár bjóða fram fimm listar eins og áður segir en það eru B-listi Framsóknarflokks og lýðræðissinna, E-listi Alþýðuflokks og félagshyggjumanna, G-listi Alþýðubandalags, H-listi óháðra og Z-listi Nýs vettlings.
Nýr vettlingur er þannig skipaður:
1. Steingrímur Á. Guðmundsson verslunarmaður
2. Karl Steinar Óskarsson sjómaður
3. Arnar Barðason útgerðarmaður
4. Kristján Víðir Kristjánsson útgerðarmaður
5. Þorsteinn Guðbjörnsson útgerðarmaður
6. Vikar Freyr Oddsson stýrimaður
7. Róbert Schmidt fréttaritari
8. Sigurður Þórisson skipstjóri.
Á Suðureyri búa nú 394 og af þeim eru 245 á kjörskrá. Alls eru 50 manns í framboði til sveitarstjórnarkosninga, eða 20,41% af öllum kosningabærum íbúum á Suðureyri. Þetta samsvarar því að 14.500 Reykvíkingar væru í framboði í ár.
Helga Guðrún, DV, Ísafirði
3. Maí 1990
Svo mörg voru þau orð. Ég á einhverstaðar ljósmynd af okkur "Vettlingunum" enda var þetta framboð meira gert í gríni en alvöru. Helsta ástæðan fyrir framboðinu var sú að okkur fannst þetta vera komið í bölvaða vitleysu á Suðureyri, að 4 listar væru í framboði í svona litlu samfélagi. Og við prófuðum bara að safna meðmælendum á blað, stilltum upp á lista og settum fram ýmsar tillögur á blað og þetta var innsiglað korter í miðnætti til Gests Kristjánssonar hreppstjóra sem veitti gögnunum viðtöku. Málið var ekki flóknara. Mikið var rætt um Nýjan vettling á Suðureyri og sumir urðu blóðillir yfir þessum fíflalátum. Spennan var mikil þegar atkvæði voru talin og það munaði aðeins örfáum atkvæðum að Nýr vettlingur fengi inn mann í sveitarstjórn.
Ps. ég mun halda áfram að birta hér, af og til, úrdrætti úr gömlum fréttum frá Súgandafirði en hvet lesendur að senda nú inn minnispunkta og annað sem gæti verið skemmtilegt að birta.
Kveðja
Róbert
robert@skopmyndir.com
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.10.2008 | 12:47
Súgfirskar blómarósir
Hér er ein mynd af nokkrum súgfirskum blómarósum sem tekin var fyrir ca 9-10 árum síðan. Þær þekkja allir vel enda rómaðar fyrir kátínu og partýgleði. Gaman væri að fá sendar fermingarmyndir af nokkrum árgöngum til birtingar á síðunni eða í myndasafnið.
Á myndinni eru: Svanhildur Halldórs, Kristín Einars, Inga Guðmunds og Fríða Bára Valgeirs.
Kveðja
Róbert
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 12:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.10.2008 | 11:23
Hallbjarnarbragur
Eins og margir Súgfirðingar vita, þá var Guðni "Kóngur" Guðmundsson mikill hagyrðingur og samdi margar ódauðlegar vísur. Vil ég rifja upp frægan brag er Guðni orti um Hallbjörn Guðmundsson (Halla Bjössa) á sínum tíma og var þessi bragur sungin í rútum og við ýmis mannamót árum saman og þá gjarnan undir laginu: Fyrr var oft í koti kátt. Ekki man ég nákvæmlega hvernig þessi rómaði bragur Guðna var en þeir sem hafa hann á 100% hreinu, mega endilega senda mér síðustu vísurnar og leiðrétta ef rangt er farið með. Bragurinn er samin um lítið ferðalag Bjössa frá gatnamótum á Botnsheiðinn áleiðis til Suðureyrar fótgangandi.
Með fullri virðingu við Bjössa og Guðna, þá ætti það að vera óhætt að birta þennan brag hér á síðunni enda gert til gamans. Þeir hefðu örugglega samþykkt það báðir tveir.
Hallbjarnarbragur
Hallbjörn yfir heiði gekk,
hafði á ýmsu gætur.
Vænan sjúss af Wískí fékk,
varla stóð í fætur.
Er Hallbjarnar var hálfnuð leið,
hýrnaði yfir kalli.
Framundan var gatan greið,
garpur varðist falli.
Þú sem margar byrgðar berð,
sem berserkja er siður.
Í stóru beygju á fullri ferð,
fram af steyptist niður.
Á það hefur Bjössi bent,
er byrjar í sig að skvetta.
Að það er ekki heiglum hent,
að hendast niður kletta.
Vasapelinn virtist frá,
var það mikill skaði.
Hallbjörn niðr'í lautu lá,
líkur sauðataði.
Höf: Guðni Guðmundsson
Suðureyri.
Meðfylgjandi mynd tók ég af Bjössa 17. júní hér um árið skömmu áður en hann hætti að hlaupa víðavangshlaup Stefnis. Blessuð sé minning Bjössa og Guðna. Þeim munum við aldrei gleyma.
Róbert
robert@skopmyndir.com
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 11:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.10.2008 | 11:57
Nýjar myndir komnar inn
Læt þetta duga að sinni. Munið að skrifa í gestabókina.
Róbert
28.10.2008 | 11:48
Púkarnir á leið í skólann
Gaman að þessu. Takk fyrir myndina Elli
Kveðja
Róbert
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 11:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.10.2008 | 09:04
Góðar móttökur
Ps. ég setti inn um 300 myndir á síðuna í gærdag og mun halda áfram að hlaða inn efni eftir því sem ég get næstu daga. En það skal tekið fram að á sugandi.is átti ég 1.000 ljósmyndir sem verða allar og rúmlega það færðar hingað yfir.
Róbert
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 09:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.10.2008 | 17:39
Diskótekið María
Suðurvers-kerran var mikið brúkuð á sínum tíma þegar þeir félagar héldu partý hér og þar um þorpið. Hátalararnir voru á stærð við þvottavélar og hljómflutningsgræjurnar, sem voru flestallar af gerðinni Marantz, voru í risastórum skáp sem var á stærð við meðalstóran ísskáp í dag. Ég tala nú ekki um snúrufarganið sem fylgdi þessu. Ég man líka að þetta var mikið fyrirtæki fyrir þá strákana að tengja vírana á milli tækja. Og athugið það gott fólk, þá var bara gamli góði vínyllinn brúkaður hvort sem plöturnar voru rispaðar eða ekki. Þeir þurftu að tipla á tánum á sviðinu í félagsheimilinu til að nálin hoppaði ekki á plötunni. Bjössi átti stundum erfitt með það og stundum komu ballgestir uppá sviðið til að fá óskalag leikið og þá fór allt fjandans til.
Læt fylgja með eina skemmtilega mynd sem var tekin sama ár (1979) af þeim systrum Jónu og Elmu Diego í dansfíling á Pallinum. Líklega hafa þeir félagar úr Diskótekinu Maríu séð um tónlistina þá eins og alltaf.
Kveðja
Róbert
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 17:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.10.2008 | 15:52
Frábært myndskeið frá Suðureyri
Róbert
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.10.2008 | 15:40
Gömlu kempurnar úr Stefni
Gaman að þessu. Ef einhver á gamlar myndir úr boltanum, endilega sendið mér þær á robert@skopmyndir.com
Róbert
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 15:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)