3.3.2010 | 22:17
Pálmi Gests og Elva Ósk á leið til Suðureyrar
Tökur á myndinni Vaxandi tungl hefjast seinni hluta marsmánaðar á Suðureyri og fer Pálmi Gestsson leikari og Bolvíkingur með aðalhlutverkið. Einnig mætir leikkonan Elva Ósk á eyrina ásamt fríðu föruneyti. Myndin er eftir Lýð Árnason lækni. Framleiðendur eru; Í einni sæng, Íslandssaga á Suðureyri og Sigurður Ólafsson. Búast má við að tökur standi yfir í nokkrar vikur.
"Vaxandi tungl fjallar um aldraða konu sem deyr í litlu sjávarþorpi. Eldri sonur hennar býr á staðnum ásamt fjölskyldu, en yngri sonurinn býr í Reykjavík með konu sinni. Lát gömlu konunnar vekur átök á milli bræðranna. Óvænt þungun flækir málin enn frekar. Kemur þá til skjalanna yngsta dóttirin, augasteinn ömmu sinnar. Hún finnur fyrir nánd gömlu konunnar, afræður að bjóða örlögunum birginn og berjast fyrir sínu," segir á heimasíðu Í einni sæng. Nánari upplýsingar eru að finna á eftirfarandi tengli:
http://ontrack.is/vaxanditunglfrettir.htm
Í samtali við Pálma segir hann að þetta sé fyrsta kvikmyndin sem hann leikur í fyrir vestan og það sé tilhlökkunarefni að dvelja þar á meðan á tökunum stendur. "Ég kem til með að keyra á milli og verð í húsinu mínu, Hjara, í Víkinni. Þetta leggst mjög vel í mig og ég hlakka til," segir Pálmi sem leikur aðalhlutverkið í myndinni, bróðurinn Friðbert.
Kveðja
Róbert Schmidt
Flokkur: Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 23:33 | Facebook
Af mbl.is
Innlent
- Engin fjárheimild fyrir Fossvogsbrú
- Gul viðvörun víða um land vegna hríðaveðurs
- Togast á um vistarverur í Alþingishúsi
- Koma í veg fyrir frekari tafir
- Kolbrún í framboði til rektors
- Björn Þorsteinsson býður sig fram til rektors
- Umdeildir þættir tilnefndir til verðlauna
- Aðstoðarrektor býður sig fram til rektors
- Kristín, Rán, Guðjón og Stefán Máni verðlaunuð
- Þetta þurfa húseigendur að vita vegna veðursins
Erlent
- Flugslys í Washington
- Dóttir JFK segir frænda sinn vanhæfan dýraníðing
- Gul viðvörun á Kanaríeyjum
- Segir áform Trumps grimmdarleg
- Fjórir Norðmenn látnir eftir snjóflóð í Ölpunum
- Ætlar að senda 30.000 innflytjendur til Guantánamo
- OpenAI treður illsakir við DeepSeek
- Samstarf við öfgahægrið ófyrirgefanlegt
- Grænlendingar vísa Trump á bug
- Sýður á grænlenska þingmeirihlutanum
Fólk
- Stewart hefur ekki tapað kynþokkanum með aldrinum
- Dóttir Madonnu skildi lítið eftir fyrir ímyndunaraflið
- Þyngdi sig um 10 kíló fyrir hlutverk
- Clark Kent handtekinn fyrir ölvunarakstur
- Aðgerðasinnar trufluðu sýningu á West End
- Sam Asghari um hjónaband þeirra Britney Spears
- Zellweger og Grant glæsileg á bleika dreglinum
- Hefur lést um 18 kíló með aðstoð þyngdarstjórnunarlyfja
- Skopmynd af stóra skómáli Ingu Sæland vekur athygli
- Bað kærustunnar á ógleymanlegan hátt
Athugasemdir
Friðbert heitir hann víst! Rétt skal vera rétt.
Pálmi Gestsson (IP-tala skráð) 3.3.2010 kl. 23:02
Leiðrétt :)
Róbert Schmidt, 3.3.2010 kl. 23:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.