3.3.2010 | 22:17
Pálmi Gests og Elva Ósk á leið til Suðureyrar
Tökur á myndinni Vaxandi tungl hefjast seinni hluta marsmánaðar á Suðureyri og fer Pálmi Gestsson leikari og Bolvíkingur með aðalhlutverkið. Einnig mætir leikkonan Elva Ósk á eyrina ásamt fríðu föruneyti. Myndin er eftir Lýð Árnason lækni. Framleiðendur eru; Í einni sæng, Íslandssaga á Suðureyri og Sigurður Ólafsson. Búast má við að tökur standi yfir í nokkrar vikur.
"Vaxandi tungl fjallar um aldraða konu sem deyr í litlu sjávarþorpi. Eldri sonur hennar býr á staðnum ásamt fjölskyldu, en yngri sonurinn býr í Reykjavík með konu sinni. Lát gömlu konunnar vekur átök á milli bræðranna. Óvænt þungun flækir málin enn frekar. Kemur þá til skjalanna yngsta dóttirin, augasteinn ömmu sinnar. Hún finnur fyrir nánd gömlu konunnar, afræður að bjóða örlögunum birginn og berjast fyrir sínu," segir á heimasíðu Í einni sæng. Nánari upplýsingar eru að finna á eftirfarandi tengli:
http://ontrack.is/vaxanditunglfrettir.htm
Í samtali við Pálma segir hann að þetta sé fyrsta kvikmyndin sem hann leikur í fyrir vestan og það sé tilhlökkunarefni að dvelja þar á meðan á tökunum stendur. "Ég kem til með að keyra á milli og verð í húsinu mínu, Hjara, í Víkinni. Þetta leggst mjög vel í mig og ég hlakka til," segir Pálmi sem leikur aðalhlutverkið í myndinni, bróðurinn Friðbert.
Kveðja
Róbert Schmidt
Flokkur: Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 23:33 | Facebook
Af mbl.is
Fólk
- Atli Örvarsson hlaut BAFTA verðlaunin
- Endurgerði atriði úr Dune 2 á íslensku
- 15 ára drengur frumsýnir mynd í Bíó Paradís
- Vinátta ósamlyndra svila
- Ný íslensk stikla slær áhorfsmet
- Ægir Sindri hlaut fyrsta styrkinn úr sjóði Prins Póló
- Er ekki að spá í að opna kaffihús
- Hera Björk farin til Malmö
- Grunnskólakennari á Nesinu datt í lukkupottinn
- Elly snýr aftur
Athugasemdir
Friðbert heitir hann víst! Rétt skal vera rétt.
Pálmi Gestsson (IP-tala skráð) 3.3.2010 kl. 23:02
Leiðrétt :)
Róbert Schmidt, 3.3.2010 kl. 23:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.