1.2.2009 | 01:07
Fjör á þorrablóti Súgfirðingafélagsins
Það var mikið fjör á þorrablóti Súgfirðingafélagsins sem haldið var í Kópavogi sl föstudag. Um 140 manns mættu í matinn og einhver slatti mætti á ballið. Sigurþór Ómarsson, formaður félagsins setti samkomuna og Snorri Sturluson tók síðan við veislustjórninni. Magnús Guðfinnsson flutti mynni kvenna við frábærar undirtektir en hann lék Guðna Ágústsson er hann flutti mynnið og tókst honum það sérlega vel. Magnús flutti einnig mynni karla í gervi Jóhönnu Sigurðardóttur, verðandi forsætisráðherra og var mikið hlegið.
Fluttir voru fjölmargir botnar við fyrriparta Snorra Sturlusonar en hvert borð valdi fulltrúa sinn til að flytja botnana. Farið var í spurningaleiki og voru spurningarnar allar tengdar heimahögunum. Að lokinni spurningarkeppninni tók Atli Ómarsson gjaldkeri félagsins við og stýrði happadrætti áður en hljómsveitin steig á svið. Nokkrir gestir ávörpuðu samkomuna t.d. Guðrún Ásta Guðjónsdóttir og Oddný Schmidt. Dansað var fram til kl 03 og stóð hljómsveitin sig frábærlega. Ég mun setja myndir frá blótinu hér inn á næstu dögum en fyrst þarf að vinna myndirnar og smækka.
Kveðja
Róbert

Flokkur: Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 01:09 | Facebook
Af mbl.is
Viðskipti
- Íslendingar duglegir að færa sig milli fjármálafyrirtækja
- Níutíu prósent hafa notað lausnir Dokubit
- Hvenær falla hin frábæru sjö fyrirtæki í verði?
- Vonar að slitin liðki fyrir aðgangi að gögnum
- Álverðið að nálgast 2.700 dali
- Fjármálastjóri Play hættir
- Keypti Hvítasunnudag fyrir svimandi upphæð
- Nýtt hótel í Bríetartúni
- Telja erfiðara fyrir opinbera aðila að fjármagna verkefni
- Harpa eykur rekstrartekjur sínar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.