16.2.2009 | 10:42
180 manns skráðir á Góugleðina á Suðureyri
Það styttist óðum í Góugleðina á Suðureyri en hún verður nk laugardag (21. febrúar) og samkvæmt
síðustu fréttum er gert ráð fyrir 180 matargestum og reiknað er með að um 40 manns muni sitja við tvo langborð á sviðinu. Einnig eru nokkrir á biðlista samkvæmt uppl frá Sturla Páli. Þá er nú líklegast að Félagsheimili Súgfirðinga verði fullsetið. Matargestir mæta með sín þorratrog og hver fjölskylda hefur sína siði. Þetta er án efa stærsta samkoman á árinu fyrir utan Sæluhelgina og það verður áreiðanlega mikið hlegið, sungið og dansað á Góugleðinni eins og venja er enda verður hljómsveitin Kraftlyfting sem sér um tónlistina með Venna & co.
Karlarnir sjá um skemmtiatriðin að þessu sinni en á næsta ári halda konurnar Þorrablót og svo skiptist þetta annað hvert ár. Félagsheimilið hefur fengið sína andlitslyftingu og nú er æft daglega fyrir Góugleðina. Eins og vænta má, verður skotið vinstri hægri á náungann og fáum hlíft við spaugilegu hliðarnar á mannlífinu í Súgandafirði.
Kveðja
Róbert

Flokkur: Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 11:27 | Facebook
Af mbl.is
Viðskipti
- Styrkja stöðu íslensku í atvinnulífinu
- Útgjöld til hernaðar- og varnarmála aukast um allan heim
- Sameining við Kviku gæti skapað öflugan banka
- Fyrirtæki og heimili standi vel heilt yfir
- Tæknin breytir leiknum
- Segja sjö þúsund starfsmönnum upp
- Dollarinn niður en vextir upp
- Seldu lagerinn og standa vaktina í Prís
- Reon ræður inn hönnunarstjóra frá Spotify
- Stólpi flytur á Gullhellu
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.