6.5.2009 | 16:51
Vígalegur hlýri
Hann er vígalegur þessi hlýri sem Steindór Ingi Kjellberg á línubátnum Kristjáni ÍS á Suðureyri heldur á. Hlýrinn er nokkuð stór eða um 18 kg en þeir geta orðið mun þyngri og stærri. "Það voru mikil læti í þessum þegar ég var að koma honum inn fyrir en hann náði að bíta í annan vettlinginn minn og reif gat á hann. Sem betur fór, náði hann ekki að bíta í höndina, það hefði ekki verið þægilegt," sagði Steini hress og kátur en þeir félagar á Kristjáni ÍS lönduðu um tveimur tonnum af blönduðum afla í dag. Spáð er bræluskít næstu tvo daga en laugardagurinn verður líklega góður til sjóferða. Ágætt er að minna svartfuglaskyttur á að síðasti veiðidagur á svartfugli er á sunnudaginn, 10. maí.
Ljósm: R.Schmidt
Kveðja
Róbert
robert@skopmyndir.com
Ljósm: R.Schmidt
Kveðja
Róbert
robert@skopmyndir.com
Flokkur: Bílar og akstur | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.