Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009
27.7.2009 | 16:39
Fengu 148 kg stórlúðu
Á myndinni eru þeir Þröstur og Þráinn Þór með lúðuna vænu.
Kveðja
Róbert Schmidt
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.7.2009 | 19:09
Snjór í miðjum hlíðum
Rótgrónir Súgfirðingar láta sér ekki bregða þótt gráni í fjöll í júní og júlí en aðrir gapa af undrun og spyrja sig hvort sumarið sé búið. Vestfirðingar vöknuðu upp í morgun með snjó niður í miðjar hlíðar en í dag hefur rignt talsvert og snjóinn því tekið upp að miklu leiti. Veðurfræðingar voru búnir að spá snjókomu til fjalla og á hálendi landsins og þeir sem fylgjast með veðurfréttum vissu vel að það myndi snjóa. Spáin er góð yfir helgina, hæglætis veður og það styttir upp í nótt, hiti 5-10 stig. Við skulum vona að haustlægðirnar bíði aðeins þar til sumrinu lýkur :)
Nýjar myndir voru að bætast við sem teknar voru sl laugardag í Borni Súgandafjarðar. Hægt er að skoða þær á myndasíðunni.
Kveðja
Róbert Schmidt
Ljósmyndir: R.Schmidt
Bílar og akstur | Breytt 27.7.2009 kl. 10:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.7.2009 | 12:22
Á stórlúðuveiðum á 440 faðma dýpi
Þröstur Karlsson frá Bæ í Súgandafirði hefur verið á stórlúðuveiðum í sumar á 15 tonna plastbáti sem heitir Flugaldan ST-54 sem er í eigu Strandamannsins Gumma El en báturinn er skráður í Djúpuvík en gerður út frá Akranesi. Þeir félagar eru á lúðuveiðum djúpt út frá Reykjanesi eða um 100 sjómílur frá landi en fáir bátar hérlendis gera sérstaklega út á stórlúðuveiðar. Reyndar hefur Ólafur Einarsson (sonur Einars Óla) róið á þessi mið í nokkur ár með góðum árangri. Svona sjóferðir taka 3-5 daga en stímið á miðin tekur drjúgan tíma. Þröstur og félagar eru vel útbúnir til veiðanna enda lúðurnar ansi vænar eða frá 30 til 110 kg flykki. Þröstur segir að lúðurnar séu minni í ár en í fyrra en þá fengu þeir mikið af 30-50 kg lúðum. Dýpið sem línan er lögð á er á bilinu 200-440 faðmar en færið getur stundum farið niður á 550 faðma dýpi og er línan beitt jafnóðum og hún er dregin inn.
Einnig hafa Þröstur og félagar verið að fá góðan afla af aldamótakarfa eða um tvö kör í ferð þegar mest aflast sem er um 800-900 kg. Karfarnir eru á bilinu 10-16 kg að þyngd og mælast 80-90 sm að lengd sem er ekkert smáræði. Við reynum að hanga eitthvað á þessu fram eftir hausti, fer bara eftir ástandinu og sölumöguleikunum. Hér hafa verið nokkrir bátar á lúðuveiðum í sumar, þrír af sömu stærð og okkar bátur, einn 30 tonna bátur, tveir 150 tonna bátar og tveir frá Færeyjum. Núna erum við bara einir eftir ásamt stóra bátnum Suprise frá Hafnarfirði, sagði Þröstur.
Verð á stórlúðunni hefur verið best á Bretlandsmarkaði en þeir prófuðu að selja á markað í Danmörku en þar fengu þeir aðeins fjórðungi lægra verð fyrir kílóið. Stórlúða er utankvóta fiskur og þarf sérstakar línur og króka til þeirra veiða. Sumarið 2008 gaf 6-8 tonn af bátinn en það sem af er þessu sumri eru komin tæp 11 tonn af stórlúðu. Það ríkir ætíð mikill ævintýrabragur yfir stórlúðuveiðum en það þykir happafengur mikill ef sjómenn fá stórlúður á handfæri eða línu hér við land. Margar lúður sem dregnar hafa verið á handfæri hafa verið á þriðjahundrað kíló að þyngd og það eru alvöru stórlúður. Ég læt hér fylgja með nokkrar myndir frá þessum veiðiskap sem Þröstur tók í sumar.
Kveðja
Róbert Schmidt
Bílar og akstur | Breytt 25.7.2009 kl. 09:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2009 | 00:49
Framkvæmdastjóri óskast
Kröfur sem að stjórn HOFSÚ gerir til þessa einstaklings er að hann sé jákvæður Súgfirðingur sem vill taka að sér starfið meira af hugsjón en það að það verði lifibrauð viðkomandi. Ekki verður um að ræða miklar launagreiðslur, nema að tilkomi miklar tekjur úr rekstrinum, semsagt árangurstengt. Þá mun þessi einstaklingur vinna með stjórn HOFSÚ að þeim uppbyggingaráætlunum sem fyrirhugaðar eru á næstu árum.
Áhugasamir aðilar eru vinsamlegast beðnir um að setja sig í samband við Óðinn Gestsson formann stjórnar HOFSÚ til skrafs og ráðagerða um starfið. Annaðhvort í símann minn 8922482 eða þá með rafpósti á odinn@icelandicsaga.is
Fh stjórnar HOFSÚ
Óðinn Gestsson.
16.7.2009 | 12:50
Sólrík Sæluhelgi að baki
Það er óhætt að fullyrða að sólríkt hafi verið á Sæluhelgi á Suðureyri sem lauk s.l. sunnudag. Hátíðin tókst frábærlega vel enda vel skipulögð af Mansavinum, Ævari Einarssyni & Co og ber að þakka þeim sérstaklega fyrir undirbúning, skipulagningu og framkvæmd hátíðarinnar sem var sú tuttugasta og önnur að þessu sinni. Óábyrgar tölur herma að á milli 600-700 gestir hafi verið á Suðureyri á laugardeginum. Veðrið lék við alla og má segja að ef þessi litli vindur sem ríkti yfir helgina hefði ekki verið, þá væri margir sólbrenndir í dag.
Sameiginlegt grill var haldið á túnblettinum við Íslandssögu og var þétt setið þar á föstudagskvöldinu. Eftir matinn var farið í ýmsa skemmtilega leiki og síðan var dansleikur um kvöldið. Mansakeppnin var eftir hádegið á laugardeginum en tæplega 100 krakkar skráðu sig til leiks en veiðin var frekar dræm að þessu sinni. Markaðstorg var allan tímann í fiskverkunarhúsi Valla við höfnina þar sem hægt var að kaupa heitan mat, nýbakaðar vöfflur, pylsur, hveitikökur, harðfisk, rauðmaga og lopapeysur svo fátt eitt sé nefnt. Farið var í fjallgöngu á Hádegishorn með Önnu Bjarna í fararbroddi en alls tóku 15 manns þátt í henni. Kassabílarallíið var á sínum stað og síðan var stórdansleikur í FSÚ um kvöldið sem var vel sótt.
Sunnudagurinn fór vel fram enda sólin hátt á lofti. Sleggjukast karla og kvenna, húsmæðrafótbolti á Sjöstjörnunni, söngvarakeppni og verðlaunaafhending fyrir snyrtilegustu eignina og garðana á Suðureyri veitt. Húsbílar, fellihýsi, tjaldvagnar og tjöld voru víða um eyrina alveg fram yfir helgina. Margir fóru í sundlaugina eða gáfu öndunum brauð á tjörninni. Börnin léku sér allan daginn í hoppuköstulunum og að endingu var kveikt á 22 blysum á hafnargarðinum og Sæluhelginni lokað formlega við dynjandi lófaklapp gesta.
Myndum hefur verið hlaðið inn í sérstakt albúm merkt "Sæluhelgin 2009"
Kveðja
Róbert Schmidt
Ljósmyndir: Róbert Schmidt
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 13:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.7.2009 | 20:35
Dagskrá Sæluhelgar
13:00-18:00 Handverkshúsið Milli fjalla opið fyrir gesti og gangandi.
17:00-18:00 Skothólsganga 11 ára og yngri. Mæting á Sjöstjörnunni.
17:00-18:00 Þorpsganga undir leiðsögn Jóhanns Bjarnasonar. Saga húsa og bæjarins rifjuð upp.
19:00-22:00 Fjölskylduhátíð og grill á Freyjuvöllum. Opnunarræða, kynning á Sæluhelgarlaginu, hattakeppni, gjarðaskopp, yfirdráttur, kossakeppni 13-17 ára og verðlaunaafhending. Mansavinir hvetja fólk að virkja ímyndunaraflið í hattagerðinni.
23:00-03:00 Stórdansleikur í FSÚ þar sem hljómsveitin Kraftlyfting heldur uppi rífandi stemmingu fram á morgun.
Laugardagurinn 11. júlí:
12:30-13:00 Skráning í Mansakeppni og kajakróður.
13:00-15:00 Íslandsmeistaramót í kajakróðri (10 km) og Jarlsróðurinn.
13:00-16:00 Handverkshúsið Milli fjalla opið fyrir gesti og gangandi.
13:10-13:40 Tuttugasta og önnur Mansakeppnin, 12 ára og yngri.
14:00-15:30 Kassabílarallý, kleinu- og harðfiskkeppni. Verðlaunaafhending. Sölutjöld verða á höfninni, seldur verður matur og drykkir.
15:00-18:00 Fjallganga fyrir fullorðna á Hádegishorn undir leiðsögn Önnu Bjarna. Mæting á Sjöstjörnu.
16:00-17:00 Æfing fyrir söngvarakeppnina í kaffisal Íslandssögu.
17:00-19:00 Fjósið í botni verður opið gestum og gangandi.
20:00-21:00 Barnaball með hljómsveitinni Kraftlyftingu.
21:00-22:00 Tónleikar með unglingahljómsveitinni Brot.
22:00-03:00 Sælukráin í FSÚ. Tónlistarkvöld, þar sem m.a. ungt og efnilegt tónlistarfólk treður upp s.s. Emma Ævarsdóttir, Eyrún Arnarsdóttir og Elín Sigurðardóttir. Hljómsveitin Heimabruggið.
Sunnudagurinn 12. júlí:
13:00-16:00 Handverkshúsið Milli fjala opið fyrir gesti og gangandi.
13:00-17:00 Sæluhátíð við Bryggjukot. Markaðstorg, kaffisala Ársólar, sleggjukast, hinn rómaði húsmæðrafótbolti, söngvarakeppni og verðlaunaafhending. Umhverfisverðlaun verða veitt fyrir snyrtilegustu eignirnar og garðana í Súgandafirði.
17:00 Sæluslútt með viðeigandi elddansi.
Leiktæki og hoppukastalar fyrir börn og unglinga verða á svæðinu alla Sæluhelgina.
Kynning á nýju Sæluhelgarlagi eftir Hálfdán Bjarka Hálfdánsson.
Sæluhelgarmerkið (kr. 1000) veitir aðgang að öllum dagskrárliðum og leiktækjum yfir Sæluhelgina, nema stórdansleik á föstudagskvöldið.
Sæluhelgardiskur með 10 eldri Sæluhelgarlögum verður seldur yfir Sæluhelgina ásamt merktum könnum og pennum.
Íþróttafélagið Stefnir verður með pylsusölu yfir Sæluhelgina.
Sjáumst á Sælu
MANSAVINIR
5.7.2009 | 13:40
Myndir frá Sumarhátíð 2009
Kveðja
Róbert