Færsluflokkur: Bílar og akstur
5.7.2010 | 18:22
Sæluhelgi framundan á Súganda
Samkvæmt mínum heimildum er búist við miklum fjölda gesta vestur á Sæluhelgina enda troðfull dagskrá í þrjá heila daga, frá föstudegi og fram á sunnudagskvöld. Hægt er að sjá dagskrána á www.sudureyri.is
Kveðja
Róbert Schmidt
S: 8404022
5.7.2010 | 10:48
Sjö lúður á land
Stórþorskar veiðast vel á sjóstönginni og algengt er að sjá þorska á bilinu 20-26 kg að þyngd eða um 145 sm að lengd þeir stærstu. 16 kg skötuselur veiddist nýverið á stöng frá Suðureyri en fjörðurinn er víst fullur af skötusel.
Sjóstangavertíðin hefur gengið mjög vel og mikið að gera. Öll hús og bátar hafa verið fullbókuð frá því eftir miðjan maímánuð. Síðustu hóparnir fara af landi brott um miðjan september nk.
Texti og myndir:
Róbert Schmidt
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 10:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.4.2010 | 18:50
Fyrstu sjóstangakallarnir mættir
Texti og myndir:
Róbert Schmidt
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 18:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.4.2010 | 18:52
Skólagata 6 fær andlitslyftingu
Nýtt þakjárn er á húsinu sem og nýir gluggar. Eftir andlitslyftinguna fær Skólagata 6 á sig nýja og glæsilega mynd enda fallegt hús á góðum stað. Að endingu ætla Gísli og Inga að girða lóðina af í sumar. Það má því segja að endurbætur á gömlum húsum á Suðureyri byrja af krafti í ár og mun fyrr en venjulega. Síðasta ár var eitt það besta í langan tíma í endurbótum húsa á Suðureyri en þá þögnuðu hamrarnir ekki allt sumarið. Ásýnd sjávarþorpsins Suðureyri er til fyrirmyndar, þökk sé framtaksömum húseigendum og fyrirtækjum á staðnum.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í dag þegar Gísli og bolvísku smiðirnir voru að verki við Skólagötu 6.
Texti og myndir:
Róbert Schmidt
Bílar og akstur | Breytt 9.4.2010 kl. 15:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2010 | 15:42
Suðureyrarkirkja í morgunsólinni
5.4.2010 | 15:36
Vel heppnað blakmót
Texti og myndir
Róbert Schmidt
2.4.2010 | 14:43
Fullt hús á sögustund á Talisman
Veitingastaðurinn Talisman stóð fyrir sögustund á Skírdagskvöld þar sem Guðni Einarsson, Snorri Sturluson, Þóra Þórðardóttir og James hinn írski sögðu gestum sögur úr ýmsum áttum. Húsfylli var á Talisman og greinilegt að heimamenn kunna að meta slíkar þjóðlegar uppákomur.
Guðni Einarsson sagði frá eftirminnilegri ferð sinni til Nigeríu og sjóferðum á Sigurvon ÍS frá Suðureyri. Einnig sagði Guðni frá þeirri sérkennilegri iðju sem krakki að hlaupa í gegnum húsið hennar Betu gömlu til að stytta sér leið niður í þorpið. Var mikið hlegið af þeirri frásögn. Snorri Sturluson sagði frá Grænlandsferð sem taflfélagið Hrókurinn fór í og flutti margar vísur og limrur. Einnig sagði Snorri frá strandi breska togarans Talisman við Keravíkina í Súgandafirði sem var átakaleg frásögn og eftirminnileg. Þóra Þórðar sagði m.a. frá mannlífi við Þverá í Staðardal sem var lítið kot úr Bæjarlandi undir hjöllunum þar sem Sunddalsá rennur. James hinn írski, eins og hann er kallaður á Suðureyr,i sagði þjóðsögu frá írsku smáfólki eða álfum en þess má geta að James er mannfræðinemi og dvelur hann á Suðureyri í 6 mánuði til að kynnast heimamönnum, atvinnulífi, menningu og sögu staðarins.
Góður rómur var gerður að sögunum og gestir hlustuðu af áhuga og þökkuðu fyrir sig með lófaklappi. Þarna skapaðist góð stemning utan um sagnarlistina sem hefur fylgt Íslendingum í hundruð ára. Jón Arnar Gestsson, vert á Talisman, þakkaði í lokin sögufólki og gestum fyrir komuna og sleit formlega fyrsta sögukvöldi á Talisman sem verður vonandi endurtekið.
Fleiri ljósmyndir frá sögukvöldinu er að finna á eftirfarandi tengli á myndaalbúmið á forsíðunni:
http://sudureyri.blog.is/album/sogustund_a_talisman_2010/
Texti og myndir: Róbert Schmidt
Bílar og akstur | Breytt 5.4.2010 kl. 15:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.3.2010 | 16:09
Sögukvöld, páskeggjaleit og lifandi tónlist á Suðureyri um páskana
Það verður nóg um að vera á Talisman og FSÚ-barnum um páskana að sögn Jóns Arnars Gestssonar rekstraraðila. "Hér verður opið frá kl 08 að morgni alla daga til miðnættis. Við verðum með hlaðborð í hádeginu og á kvöldin alla páskana hér á Talisman og ýmsar uppákomur bæði fyrir fullorðna og börn," segir Jón.
Á Skírdagskvöldið verður Sögustund á Talisman þar sem sagnamenn og konur mæta og segja sögur úr ýmsum áttum. Allir sem luma á góðum sögum eru hvattir til að mæta á staðinn og vera með.
Eftir miðnætti á Föstudaginn langa verður boðið uppá lifandi tónlist og trúbadorsstemningu á FSÚ-barnum. Tilvalið fyrir heimamenn og gesti að safnast þar saman og gleðjast í góðra vina hópi.
Á Páskadag verður Páskaeggjaleit á Suðureyri sem er verið að útfæra. Nánar um það síðar. Eftir miðnætti á Páskadag verður karaoikí-kvöld á FSÚ-barnum þar sem hver og einn verður söngstjarna kvöldsins með sínu sniði.
Eins og sjá má hér að ofan, verður nóg fyrir stafni á Suðureyri yfir Páskahelgina. Minni líka á handverkshúsið Á milli fjalla þar sem hægt er að gera góð kaup á alls kyns handgerðum varningi úr heimabyggð. Handverkshúsið er staðsett í gamla Kaupfélaginu á móti Talisman.
Einnig má geta þess að tökur á kvikmyndinni Vaxandi tungl mun standa yfir á Suðureyri um og eftir páskana. Þá má líklega sjá bregða fyrir þekktum andlitum á eyrinni, eins og t.d. Pálma Gests, Elvu Ósk og Elfari Loga.
Páskamót í blaki verður í íþróttahúsinu Föstudaginn langa. Sjá nánar í frétt hér fyrir neðan.
Kveðja
Róbert Schmidt
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 16:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.3.2010 | 15:38
Páskamót í blaki á Suðureyri
Haldið verður í annað sinn Páskamót í blaki í íþróttahúsinu á Suðureyri laugardaginn 3. apríl. Blakmótið verður eins konar skemmtiblak þar sem ungir og aldnir leiða saman hesta sína til að hafa gaman af. Mótið hefst kl 11:00 um morguninn og er þátttökugjald kr 300 á einstakling. Mótið er fyrir 14 ára og eldri. Skráning þarf að klárast kl. 15:00 á Föstudaginn langaSkírdag til Önnu Bjarna í síma: 897-5153.
Þátttakan sker úr um hvort mótið verður liðakeppni eða einstaklingskeppni. Páskablakið er tilvalin skemmtun fyrir þá sem vilja sprikkla aðeins og eiga góðan dag með skemmtilegu fólki, komast í sund á eftir og slaka á í heitu pottunum og spjalla saman. Vegleg verðlaun verða í boði eins og síðast. Hvetjum alla áhugasama 14 ára og eldri að skrá sig til leiks sem fyrst.
Munið skráningasímann: 897-5153
Kveðja
Róbert Schmidt
S: 8404022
Bílar og akstur | Breytt 26.3.2010 kl. 17:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)