3.1.2009 | 01:10
Vel heppnað áramótaball á Suðureyri
Súgfirðingar stigu áramótadansinn létt og leikandi við undirspil þeirra bræðra, Ævars, Guðna og Elvars og síðan börðu þeir bræður, Sturla Páll og Snorri Sturluson, húðirnar af stakri snilld. Já, það er óneytanlega skemmtilegt að vita til þess heimamenn haldi uppi stuðinu af og til eins og þeir gerðu svo snilldarlega á Sæluhelginni sl sumar. Fréttir herma að rúmlega 80 manns hafi mætt og skemmt sér konunglega við gömlu góðu slagarana eins og "Traustur vinur" "Marina, Marina" og "Kokkinn". "Stemmingin var eins og í þá gömlu góðu daga, meiriháttar fjör"- sagði Halldóra Hannesdóttir sem skrapp á ballið í miklu tjúttstuði.
Áramótabrennan var góð og flugeldasýningin líka enda logn og blíða í firðinum heima. Sætúnið stóð í "ljósum logum" og telja má að allir íbúar Sætúnsins hafi virt fyrir sér ljósadýrðina á þessu síðasta kvöldi ársins.
Ég nappaði tveimur myndum frá Hildi Sólveigu Elvarsdóttur af Facebook-síðunni hennar og vonandi fyrirgefur hún mér það.
Kveðja
Róbert
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 11:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.12.2008 | 10:50
Gleðilegt ár
Sudureyri.blog vill óska öllum lesendum síðunnar sem og öðrum landsmönnum gleðilegs árs með þökk fyrir árið sem er að líða. Einnig þakka ég góðar viðtökur á blogginu og vonandi verður 2009 enn skemmtilegra og viðburðarríkara en þetta ár, þótt það verði seint toppað.
Hafið það sem allra best og farið gætilega með flugeldana í kvöld. Gætið einnig að hafa ekki áfengi á svölum eða í bakgörðum ykkar þar sem unglingar gætu komist í. Algengt er að áfengi sem fólk er að kæla utandyra sé stolið þegar fólk er í fasta svefni eða á áramótabrennunni.
Gleðilegt ár kæru vinir
Róbert Schmidt
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 10:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.12.2008 | 11:50
Borðaði villtan íslenskan ref á jólunum
Ég bað vin minn Vigni Stefánsson að hafa mig í huga næst þegar hann felldi ref því mig langaði til að smakka hann. En það tók smá tíma að sannfæra hann um að ég væri ekki að grínast. En svo hringdi hann í mig þegar hann hafði fellt ref í Skagafirði og ég skellti mér strax á staðinn og verkaði refinn sem var á fyrsta ári og virkaði heldur rýr að sjá. Mér fannst ég vera að flá hund svo ég frysti kvikyndið í 10 daga til að safna í mig meiri kjarki til að snæða hann. En svo rann upp góður dagur og ég tálgaði kjötið af ganglimum refsins sem var ekki mikið þegar upp var staðið. Síðan steikti ég kjötið á heitri pönnu, kryddaði með salti og pipar. Svissaði síðan lauk, sveppi og papriku saman við refinn og bjó til villibráðarsósu. Skellti þessu svo öllu út í sósuna og lét malla í 20 mín og úr varð þessi fíni refapottréttur sem smakkaðist mjög vel. Fyrsti bitinn fór frekar hægt upp í munninn því ég vissi ekkert hverju ég átti von á. En viti menn, bragðið minnti einna helst á kindagúllas. Þetta kom mér verulega á óvart og það er óhætt að mæla með íslenska refnum á matarboðið sem kreppusteik, segir Jón Vigfús. Þrír vinir Jóns fengu að smakka á refapottréttinum og líkaði þeim vel.
Jón segist vel vera til í að borða fleiri refi í framtíðinni séu þeir verkaðir strax. Ef ég myndi bjóða gestum í refasteik, þá þyrfti ég eitt kvikyndi á mann en það fer eftir meðlætinu að sjálfsögðu," sagði Jón að lokum. Nú er það spurningin, skyldi íslenski refurinn vera næsta villibráðin sem boðið verður uppá á fínustu veitingarhúsum landsins?
Texti: Róbert Schmidt
Ljósmyndir: Jón Vigfús Guðjónsson
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 19:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.12.2008 | 15:26
Þorrablót Súgfirðingafélagsins 30 janúar 2009
Tilkynninginn er frá Súgfirðingafélaginu í Reykjavík
27.12.2008 | 13:36
Jólaball Súgfirðingafélagsins í Smáraskóla í dag
Súgfirðingafélagið í Reykjavík
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 13:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.12.2008 | 16:00
Gleðileg jól Súgfirðingar og aðrir Íslendingar
20.12.2008 | 15:46
Vísur úr skötuveislu súgfirskra karla
Þó næðir úti nepju hríð
Í norðurljósa skini.
Þá yfir gröf og alla tíð
eigið mig að vini.
Sturla Gunnar Eðvarðsson
Margir skötu míga á
Misjöfn reynast gæðin.
Komi hlandið handan frá
Heldur lengist ævin.
Útrásarvíkingar í Valhöll stefna
Velta grjóti í landans götu.
Við höfum þó nokkurra að hefna
En höldum okkur við úldna skötu.
Skítalykt af skötu fer
Skaðlega með nefið.
Borði maður bita er
Burtu farið kvefið.
Karl Steinar Óskarsson
Daunn er yfir desember
drengir hungurmorða.
Súgfirðingar skemmta sér
og kæsta skötu borða.
Snafsinn teigum skötu með
svo ljúft hún renni niður.
Ég fæ ekki betur séð
en þetta sé frábær siður.
Ingi Geir með hugmynd þekka
inn í gleðskap fríða.
Ekki bara éta og drekka
heldur einnig kyssa og kveða vísur.
Guðmundur Vignir Friðjónsson
Í skötuveislu til Magnúsar máttum,
og megn var stækjan útum allt.
Eldsúlur loguðu úr öllum gáttum
en úti var snjór og drullukalt.
Stökk á fætur skötukokkur,
með steikarhníf í hendi.
Bálið brann á bakvið okkur,
og bera skalla brenndi.
Magnús minkar eldinn niður,
og muldrar nokkur valin orð.
Seint verður talinn þjóðlegur siður,
að skaðbrennda skötu bera á borð.
Súgfirðingar seint munu gleyma,
stækjunni úr ruslafötunni.
En Eyþór stendur keikur heima
og klikkar ekki á skötunni.
Róbert Schmidt
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 15:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.12.2008 | 15:42
Aðventukvöld í Suðureyrarkirkju
Yngri börnin sungu við undirleik Bryndísar Gunnarsdóttur lögin; Bjart er yfir Betlehem og Skín í rauðar skotthúfur við undirleik Andra Más Skjaldarsonar á blokkflautu. Einnig fluttu þeir bræðurnir Daníel Snær og Jóhann Alexander Viðarssynir á gítar lagið Ég fæ jólagjöf. Flaututríó Suðureyrar (Hólmfríður María Bjarnardóttir, sópranblokkflauta, Vera Óðinsdóttir, þverflauta, Leslaw Szyszko, sópran-, alt- og tenórblokkflauta) lögin; Jólasveinninn minn, Little Blues og Þá nýfæddur Jesúm. Síðan var flutt jólasaga, bæn og blessun.
Sérstakar þakkir til kirkjukórs Þingeyrar, Tónlistarskóla Ísafjarðar, Sr, Guðrúnar Eddu Gunnarsdóttur og Bryndís Gunnarsdóttur organista og til þeirra sem gerðu stundina minnistæða.
Ljósmyndir: Halldóra Hannesdóttir.
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 15:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.12.2008 | 12:14
Skötuveisla hjá Valla á Suðureyri
Læt hér fylgja með mynd sem ég tók af Valla í sumar þegar hann var að hengja upp rauðmaga.
Kveðja
Róbert
14.12.2008 | 14:23
Frábær skötuveisla
Myndasýningu var síðan skellt á stofuvegginn þar sem farið var yfir síðustu karlaveislur hér á höfuðborgarsvæðinu. Boðið var uppá beykireykt hreindýrakjöt, heitreyktan svartfugl og reyktar heiðagæsabringur með melónu og róspiparsósu og var það allt étið upp til agna eins og búist var við. Benni Bjarna kíkti í heimsókn og Kitti Kalli kom og smalaði nokkrum ballþyrstum köllum í leigubílinn sinn og skutlað þeim á Players.
Ég setti inn 57 myndir í sérstakt myndaalbúm á síðunni.
Njótið vel.
Kveðja
Róbert
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 14:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)