6.5.2009 | 16:51
Vígalegur hlýri
Ljósm: R.Schmidt
Kveðja
Róbert
robert@skopmyndir.com
5.5.2009 | 20:40
Stuðeyri kosið Sæluhelgarlag Suðureyrar 2009
Höfundur lags og texta er Gromsarinn eða Hálfdán Bjarki Hálfdánarson en hann söng einnig lagið. Hákon er söngvari í hljómsveitinni Kraftlyfting sem t.d. spilaði á síðasta Góufagnaði á Suðureyri.
STUÐEYRI
Klikkað kassabílarall
kófsveitt Sæluhelgarball
kemst í stuðið meðan ligg ég í baði
Á Sjöstjörnu ég sælu fæ
svölum Suðureyrarbæ
senn ég þurrka mér og klæði með hraði
Tíminn líður, leigarinn bíður
það voru boruð göng, og leiðin er ekki svo löng
ég verð að fara, af því bara
á Suðureyri, ég verð að
koma mér á Sæluhelgina
kreista í mig rauðvínsbelgina
stuðið það á lögheimili hér
verð að komast beint á sælujötuna
og þó ég æli á götuna
þá fyrirgefa Súgfirðingar mér
Húsmæðraboltinn heillar mig
held það sama gildi um þig
heldri konur hver á annarri níðast
Skothól gengið skal nú á
skelfilegt að segja frá
skömm að því hvað ég var latur síðast
Vil fá meiri, Suðureyri
hætt hefur nú anda, vindurinn hér á Súganda
sólin gyllir, Spillir spillir
Suðureyri, ég verð að
koma mér á Sæluhelgina...
Söngvarakeppni sigra vil
sénslaust er það hér um bil
sextánda sætið ég þigg með þökkum
Mansakeppnin magnast brátt
má ég ekki taka þátt
mér er sagt að hún sé ætluð krökkum
Mansavinir, og allir hinir
koma á Sæluna, og ég læt ganga dæluna
um Suðureyri, því ég heyri
að hér er stuðið, ég verð að
koma mér á Sæluhelgina...
Kveðja
Róbert
robert@skopmyndir.com
S: 8404022
Bílar og akstur | Breytt 6.5.2009 kl. 19:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.5.2009 | 01:48
Ævar Einars strax farinn á rauðmaga
Svo var haldið inn að Mýganda og dregið þar upp eitt net sem gaf um 7 rauðmaga. Heildarveiðin í þessi sex net voru 56 rauðmagar, fáeinar grásleppur og kolar. Veðrið var ágætt og selirnir spókuðu sig á steinum hér og þar við ströndina, hávelluhópar flugu um fjörðinn og svo tók að bregða birtu. Ferðin var skemmtileg og alltaf gaman að sigla um fjörðinn sinn með góðu fólki.
Ævar er sem sagt þokkalegur eins og hann segir. "Ég læt ekki eina þakplötu stoppa ferðina okkar fjölskyldunnar til Tælands, það er alveg á hreinu," sagði Ævar og glotti út í annað. Það er greinilegt á kallinum að hann er brattur þrátt fyrir að hann sé marinn og sár á vinstri síðu og undir herðablaðinu. Ævar minnti á að val á sæluhelgarlaginu fari fram í Félagsheimili Súgfirðinga á morgun, þriðjudaginn 5. maí kl 18.00 og hvetur sem flesta að mæta og hlusta á lögin og kjósa.
Sem sagt, allir að mæta í FSÚ á morgun
Héru myndir úr rauðmagaferðinni með Ævari & co í dag:
http://sudureyri.blog.is/album/raudmagaveidi_i_sugandafirdi_/
Kv
Róbert
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 02:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2009 | 01:05
Rúm 100 kg á bala hjá línubátunum
Á sunnudaginn fóru þrír bátar á sjó og þá var Berti G með 2.478 kg, Gestur 4.847 kg og Hrefna 3.075 kg. Helst eru bátarnir að sækja 20-30 mílur hér út en framundan er ekki góð spá fyrir smábátana. Búið er að lagfæra gamla löndunarkranann á höfninni og geta nú verið þrír kranar í gangi þegar margir bátar vilja landa á sama tíma.
Hér eru nokkrar myndir frá löndun nokkurra línubáta í dag og fleiri myndir eru í myndaalbúminu.
Kveðja
Róbert
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 01:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2009 | 00:48
Veiddu 70 kg stórlúðu
Von er á fyrstu Þjóðverjunum til Suðureyrar og Flateyrar n.k. miðvikudag en sjóstangaveiðivertíðin hefst á þessum stöðum um miðjan maímánuð. Það verður forvitnilegt að fylgjast með hvort stórlúðum verður landað með vorinu en allir þýskir sjóstangaveiðimenn lifa í voninni um að setja í þá stóru. Ekki má gleyma fjölda heimamanna sem hafa brennandi áhuga á slíkri veiði og aldrei að vita nema nokkrir áhugasamir leggi haukalóð hér fyrir utan þegar líður á mánuðinn.
Kveðja
Róbert
Bílar og akstur | Breytt 6.5.2009 kl. 16:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.5.2009 | 11:34
Sumarhátíð Súgfirðingafélagsins 26-28 júní
Furðufatakeppni.
Efnt verður til furðufatakeppni sem kemur til með að standa alla helgina, allt kemur til greina svo endilega opnið fataskápana og tínið til gömlu fötin sem þið eruð hætt að nota. Með von um jákvæð viðbrögð og við sjáum sem flesta helgina 26-28 júní.
Súgfirðingafélagið í Reykjavík.
Myndina tók Róbert Schmidt af Kolbrúnu Elmu Schmidt, frænku sinni og börnum sínum, þeim Arnóri Schmidt og Berglindi Melax á Sæluhelginni á Suðureyri 2008.
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 11:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.5.2009 | 21:34
Þakplata slasaði mann við Súgfirðingasetrið í dag
Það lá við stórslysi um miðjan dag við Súgfirðingasetrið þegar mikil vindhviða feykti stórri þakplötu af þakinu en á henni voru tveir menn og voru að fara að negla hana niður þegar hviðan kom. Þeir köstuðust af plötunni og mátti þakka að þeir fóru ekki niður af húsinu en fallið er rúmir 10 metrar. Ævar Einarsson var að spjalla við Sigurþór, Atla og Bjarka í garðinum þegar þetta gerðist og kom þakplatan á ógnarhraða niður af þakinu og stefndi beint á strákana. Sem betur fer náðu allir að kasta sér undan plötunni en Ævar var óheppinn og fékk hana í bakið og kastaðist af hjólinu sem hann var á. Lögregla og sjúkrabíll mættu á staðinn og var Ævar fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði til aðhlynningar.
Í samtali við Ævar rétt í þessu, bar hann fyrir góða kveðju til strákana í Súgfirðingasetrinu en hann er illa marinn á baki og hruflaður. "Það má segja að úlpan sem ég var í hafi bjargað mér algerlega. Annars hefði platan stungist í gegn. Strákarnir voru allir heppnir því platan hefði getað tekið höfuðið af þeim öllum," sagði Ævar en hann ætlaði einmitt að heilsa uppá strákana til að bjóða þeim í félagsheimilið um kvöldið til að spila fyrir þá músík og syngja, svona rétt til að skemmta þeim örlítið eftir alla þessa miklu vinnu s.l. daga við Súgfirðingasetrið, þegar óhappið gerðist.
Að sögn Sigurþórs Ómarssonar sem er einn af vinnumönnum við þakið á Súgfirðingasetrinu eru þeir allir í hálfgerðu sjokki eftir þetta en ef þeir hefðu ekki náð að kasta sér frá þakplötunni, þá hefðu þeir stórslasast á höfði. "Það var bara kraftaverk að þakplatan náði ekki í andlitin á okkur en við náðum allir að snúa okkur undan á sekúndubroti," sagði Sigurþór.
Vinnan við að koma þakjárninu á hefur gengið vonum framar en aðeins er eftir smá hluti af þakinu sem verður klárað á morgun. Neðri myndin var tekin í gærmorgun þegar þeir náðu að taka allt gamla járnið af.
Við sendum Ævari bestu kveðjur um góðan bata
Kveðja
Róbert
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2009 | 17:24
Harmonikkuspil og hnallþórur
Það var glatt á hjalla á Suðureyri í dag, 1.maí og hátíðarhöld fjölmenn í tilefni dagsins. Að venju var farið í kröfugöngu frá Brekkukoti og að sögn Ævars Einars, þá var kröfugangan vel sótt að þessu sinni. Boðsund var í Sundlaug Suðureyrar og síðan var boðið uppá kaffihlaðborð í verkalýðshúsinu Bjarnarborg um miðjan dag. Báðar hæðirnar voru þétt setnar og veisluborðið svignaði undan kökum og kræsingum. Jóna Margrét Valgeirsdóttir fékk leikskólabörn til að syngja nokkur lög og einnig léku ýmis börn á hljóðfæri við góðar undirtektir gesta.
Árni frá Vöðlum í Önundarfirði mætti með harmonikkuna og spilaði helling af skemmtilegum og hressandi lögum og var mikil stemning í risinu þennan dag. Ævar Einars var sjálfskipaður söngstjóri og náði hann öllum með í fjöldasöng og fór létt með. Síðan mættu strákarnir sem eru að vinna við endurbætur á Súgfirðingasetrinu í kaffi og hvíldu hamra og sleggjur um stund og tóku þátt í hátíðarhöldum bæjarbúa með glöðu geði. Veður var frábært í dag, sólarglenna af og til og hægur vindur. Virkilega skemmtilegur dagur að baki.
Fleiri myndir frá deginum eru að finna í myndaalbúminu á forsíðunni.
Til hamingju með daginn verkafólk.
Kveðja
Róbert
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 17:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2009 | 13:29
Gamla þakjárnið komið af Súgfirðingasetrinu
Mikið líf er nú í og á Súgfirðingasetrinu þessa dagana en vinnuhópur úr Reykjavík vinnur hörðum höndum við endurbætur á þaki hússins og miðar verkinu vel. Strákarnir byrjuðu í gær að rífa þakjárnið af og kláruðu það fyrir hádegi í dag. Stefna þeir á að setja nýjan þakpappa á og nýtt járn í dag og á morgun. Veður var skaplegt í dag og um tíma skein sólin á þessa harðduglegu kappa sem leggja mikið á sig í sjálfboðavinnu fyrir Súgfirðingafélagið í Reykjavík. Í hópnum eru þeir bræður Sigurþór og Atli Ómarssynir, Bjarki Þór Bjarnason og tveir til viðbótar sem ég hef ekki fengið nöfn á ennþá.
Íslandssaga útvegaði strákunum fisk í matinn í gærkveldi og í kvöld mun undirritaður elda nýskotinn svartfugl fyrir þá enda verða þeir líklega svangir og þreyttir eftir þessa erfiðu vinnu. Hér á Suðureyri fá þeir ágæta aðstoð frá heimamönnum og fyrirtækjum sem er þakkarvert í alla staði. Ég segi betur frá hvernig verkinu miðar um helgina. Fleiri myndir eru í merktu myndaalbúmi á forsíðunni.
Kveðja
Róbert
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 13:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2009 | 13:16
Steinn féll á veginn við Kleif
Kveðja
Róbert
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 13:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)